„Konurnar eru geymdar inni í búri á meðan“ – Stefán Einar segir menningarárekstur harkalegan á Íslandi

Blaðamaðurinn Stefán Einar Stefánsson segir Íslendinga að mörgu leyti beina blindu auganu að árekstrum ólíkra menningarheima hér á landi.

Stefán Einar ræddi málið í nýjum þætti hjá Sölva Tryggvasyni þar sem hann tók meðal annars dæmi af bænahaldi í mosku við Bústaðaveg og sagði konur þar aðskildar frá körlum við bænahald.

Auglýsing

„Þegar bænahaldið hefst í moskunni upp við Bústaðaveg eru konurnar settar inn í búr. Þær eru geymdar bak við skerma. Þær mega ekki vera á sama stað í bænahaldinu,“ sagði Stefán Einar.

Sölvi spurði hvort fyrirkomulagið væri í raun með þessum hætti.

„Já, já. Ég get bara sýnt þér vídeó frá þessum samkomum. Þær biðja ekki með körlunum, þær eru geymdar inni í búri á meðan,“ svaraði Stefán Einar.

Spyr hvernig brugðist yrði við í Þjóðkirkjunni

Stefán Einar velti því næst fyrir sér hvernig samfélagið myndi bregðast við ef sambærilegt fyrirkomulag væri tekið upp innan Þjóðkirkjunnar.

„Hvað heldur þú að myndi gerast ef presturinn í Bústaðakirkju myndi segja: „Heyrðu, það þarf að skófla konunum hér inn í búr á meðan við förum með Faðir vorið.“ Hvað heldur þú að Drífa Snædal og allar þessar ágætu konur myndu segja þá?“

Sölvi svaraði að niðurstaðan væri augljós.

„Ég held að Þjóðkirkjunni yrði bara lokað með lögum, sennilega innan dagsins,“ sagði Stefán Einar.

Sölvi sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að staðan væri með þessum hætti.

„Fólk hefur tilhneigingu til þess að beina blindu auganu að því hvernig þessir menningarheimar rekast á,“ sagði Stefán Einar.

Segir skáta frá Katar hafa verið vísað af móti

Stefán Einar tók annað dæmi og vísaði til Landsmóts skáta sem haldið var á Hömrum við Akureyri í júlí.

Hann sagði skátaflokk ungra drengja frá Katar hafa tekið þátt í mótinu og hélt því fram að hegðun hluta hópsins gagnvart ungum stúlkum hefði orðið þess valdandi að kallað var eftir aðstoð yfirvalda.

„Áreitnin og ógeðið í garð ungra stúlkna, íslenskra og frá öðrum löndum, var slíkt að að lokum var gripið til þeirra aðgerða að kalla til barnaverndaryfirvöld og lögreglu. Þessum hópi var vísað af mótinu í öryggisskyni,“ sagði Stefán Einar.

Hann sagði þessi dæmi sýna að árekstrar ólíkra menningarheima væru þegar farnir að birtast hér á landi.

„Þarna eru menningarheimar að rekast á með mjög afgerandi og alvarlegum hætti.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing