Kórdrottningar sitja fyrir fáklæddar til að safna fyrir Ítalíuferð

Jórukórinn á Selfossi hefur sent frá sér nýtt dagatal fyrir árið 2026 þar sem kórkonur stilla sér upp fáklæddar í listrænum myndum.

Markmiðið er að safna fyrir ferð kórsins til Ítalíu á næsta ári, þegar Jórurnar fagna 30 ára afmæli sínu.

Valdeflandi hópefli

Auglýsing

Samkvæmt Sunnlenska.is kviknaði hugmyndin hjá kórfélaganum Helgu Guðrúnu Lárusdóttur, sem jafnframt tók ljósmyndirnar.

Hún segir að fjáröflunin sjálf hafi fljótt orðið aukaatriði í ferlinu.

„Þetta varð ótrúlega magnað hópefli. Þetta var valdeflandi fyrir konur af öllum stærðum og gerðum að stíga fram í þetta og treysta mér fyrir svo berskjölduðu verkefni,“ segir Helga Guðrún.

Hún lýsir því að þátttakendur hafi lagt sig alla fram, jafnvel þótt myndatökurnar hafi verið óvenjulegar og krefjandi. Þær sem ekki treystu sér í myndatöku studdu verkefnið með öðrum hætti og nefnir Helga Guðrún sérstaklega Elínu Maríu Halldórsdóttur og Silju Runólfsdóttur sem burðarstólpa í framkvæmdinni.

Innblástur úr kvikmynd

Helga Guðrún segir að kvikmyndin Calendar Girls frá árinu 2003 hafi veitt henni innblástur að dagatalinu.

Myndin fjallar um hóp kvenna sem gera nektardagatal til að safna fyrir góðgerðarmál.

„Ég fékk strax ótrúlega góðan meðbyr innan kórsins. Ólíklegustu konum fannst ekkert mál að taka þátt og gera þetta að veruleika,“ segir hún.

Hvert blað með þema

Rúman mánuð tók að fullgera dagatalið og er hvert blað með sitt eigið þema.

Helga Guðrún nefnir sérstaklega mánuðina sem tengjast Bleikum október og Mottumars og segir þá hafa verið sérstaklega tilfinningaþrungna.

„Það var gæsahúð og tár í augum þegar konur sem hafa sigrast á krabbameini stóðu saman í þessum tökum. Ég verð þeim ævinlega þakklát,“ segir hún.

Til sölu fyrir jólin

Dagatalið er til sölu á heimasíðu Jórukórsins og er frí heimsending á Selfossi, í Hveragerði og nágrenni.

Auk þess má búast við að kórkonur verði á ferðinni um og fyrir jólin og selji dagatölin víða.

Í Jórukórnum eru 63 konur á öllum aldri sem sameinast um sönggleði og sterka samstöðu. Með dagatalinu vilja þær bæði fjármagna afmælisferð sína til Ítalíu og senda skilaboð um samstöðu, styrk og gleði kvenna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing