Kvörtun vegna matar og viðbragða starfsfólks á veitingastaðnum TGI Fridays á Laugavegi hefur vakið mikla umræðu í Facebook hópnum Matartips.
Viðskiptavinurinn Ómar Smári Elíasson lýsir þar heimsókn sinni á staðinn og segir hana hafa verið afar slæma. Þá gagnrýnir hann bæði gæði matarins og svörin sem hann fékk í kjölfar kvörtunar.
Rif „bragðvond og slepjuleg“ og vond lykt af hrásalatinu
Í færslunni segir viðskiptavinurinn frá heimsókn sinni á staðinn sem átti sér stað á síðasta bóndadegi. Þar hafi hann fengið rif sem hann segir hafa verið langt frá því að vera í lagi þar sem þau voru að hans sögn bæði bragðvond og slepjuleg. Þá segir hann hrásalatið sem fylgdi með hafa verið bæði súrt og lyktað mjög illa.
Eiginkona hans hafi fengið sér pastarétt sem hann segir einnig hafa verið óætan vegna óbragðs. Þá segir hann eina atriðið sem hafi staðið undir væntingum verið frönsku kartöflurnar.
Lét vita strax á staðnum en var vísað á netið
Einnig segir Ómar að hann hafi strax látið starfsfólk á staðnum vita af þessum aðfinnslum en þá hafi honum verið sagt að ekkert væri hægt að gera og honum bent á að senda kvörtun í gegnum netið.
Svar staðarins vekur gagnrýni í hópnum
Í tölvupóstssamskiptum sem Ómar birti kemur fram að starfsmaður staðarins sé ósammála kvörtuninni varðandi rifin og hrásalatið.
Þar segir meðal annars að viðkomandi hafi sjálf borðað rif sama dag og að hrásalatið hafi verið gert nýtt sama dag.
„Er ekki sammála varðandi rif af því ég var sjálf borða rif sama daginn og var ekkert að. Hrásalat sem var gerð nýtt þann dag og ég var ekki æla heima“ sagði í póstinum.
Þó er viðurkennt að röng sósa hafi farið á pastaréttinn og endurgreiðsla boðin fyrir hann. Ómar segist hafa samþykkt þá lausn, en segir endurgreiðsluna ekki enn hafa borist.
Hann ítrekaði jafnframt í pósti til staðarins að maturinn hefði alls ekki verið í lagi og sendi mynd af hrásalatinu með beiðni um að farið yrði yfir geymslu matvæla.
Athugasemdir harðar og margir taka undir gagnrýnina
Í athugasemdum við færsluna taka fjölmargir undir gagnrýnina.
„Þetta hrásalat lítur alveg ævintýralega illa út,“ segir í einni athugasemd.
Í annarri segir: „Langt síðan maturinn á þessum stað varð óætur.“
Einnig er gagnrýnt hversu óskýr og ófagleg samskiptin hafi verið af hálfu staðarins. „Hver á að skilja þetta svar frá þeim? Þvílíka fagmennskan,“ segir í einni athugasemd.


