Bandaríska skylmingasambandið (USA Fencing) hefur vísað Stephanie Turner úr keppni eftir að hún neitaði að keppa við trans konu á móti í Maryland þann 30. mars.
Atvikið vakti mikla athygli eftir að Turner tók af sér grímuna og kraup í mótmælaskyni áður en viðureign hennar gegn Redmond Sullivan hófst.
Dómarinn gaf Turner svarta spjaldið, sem leiddi til brottvísunar úr keppninni.
USA Fencing: Fylgdum reglum alþjóðasambandsins
USA Fencing sagði í yfirlýsingu að ákvörðunin hafi verið tekin samkvæmt reglum Alþjóðlega skylmingasambandsins (FIE), sem banna keppendum að neita að mæta löglegum andstæðingi.
„Brottvísun Turner tengist ekki persónulegri afstöðu hennar heldur einfaldlega þeirri ákvörðun að neita að keppa við löglegan keppanda, sem er brot á reglum FIE,” sagði í yfirlýsingu sambandsins.
„USA Fencing hefur skyldu til að fylgja þessum reglum og tryggja að allar keppnir fari fram samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.“
Turner: „Ég er kona, þetta er karlmaður“
Í samtali við Fox News Digital sagði Turner að hún hefði kvöldið áður ákveðið að hún gæti ekki keppt við Sullivan.
„Ég sagði við dómarann: ‘Fyrirgefðu, ég get þetta ekki. Ég er kona, þetta er karlmaður og þetta er kvennakeppni. Ég mun ekki skylmast við þennan einstakling.’”
Viðbrögð létu ekki á sér standa á samfélagsmiðlum. Martina Navratilova, fyrrverandi tennisstjarna og baráttukona fyrir réttindum samkynhneigðra, gagnrýndi USA Fencing harðlega.
„Þetta er það sem gerist þegar konur mótmæla! Hver heldur enn að þetta sé sanngjarnt? Skömm yfir ykkur USAFencing!“ skrifaði hún á X (áður Twitter).
USA Fencing: Stefna byggð á inngildingu og núverandi rannsóknum
USA Fencing uppfærði stefnu sína gagnvart trans og kynsegin keppendum árið 2023 og sagði hana byggða á þáverandi rannsóknum og þeirri meginreglu að allir eigi aðgang að íþróttum.
Í yfirlýsingunni segir einnig: „Við munum ávallt hallast að inngildingu og marka stefnu okkar eftir því sem fleiri rannsóknir og breytingar innan Ólympíuhreyfingarinnar koma fram.“
Þess má geta að Redmond Sullivan hafði keppt í karlaflokki árið áður.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu.
Woman immediately disqualified and expelled from a @USAFencing event after refusing to face a male opponent.
This type of protest needs to be mirrored by female athletes at scale. By agreeing to compete, you tacitly accept the absurd premise.pic.twitter.com/uAoM3UlzWm
— Colin Wright (@SwipeWright) April 2, 2025