Kynvitund árásarmannsins í brennidepli eftir skotárás á íshokkíleik

Kynvitund árásarmannsins hefur orðið að meginumræðuefni morðmáls eftir skotárás sem átti sér stað á íshokkíleik framhaldsskóla í Rhode Island á mánudag. 56 ára faðir, sem hafði gengist undir „kynleiðréttingu“ og gekk einnig undir kvenmannsnafni, skaut fyrrverandi eiginkonu sína og 23 ára son til bana áður en hann svipti sig lífi.

Þrír látnir og þrír særðir eftir skotárás á íshokkíleik

Auglýsing

Atvikið átti sér stað í íþróttahöll þar sem yngri sonur fjölskyldunnar var á svellinu þegar skothríðin byrjaði.

Langvarandi deilur um kynvitund og fjölskylduslit

Samkvæmt opinberum gögnum sótti móðirin um skilnað árið 2020. Í fyrstu gögnum var vísað til kynleiðréttingaraðgerðar og persónulegra erfiðleika eiginmannsins sem ástæðu skilnaðar, en síðar var orðalaginu breytt í „ósættanlegan ágreining“. Skilnaðurinn var staðfestur árið 2021.

Dómsskjöl sýna að árin fyrir árásina höfðu komið upp deilur innan fjölskyldunnar tengdar kynvitund árásarmannsins. Lögregla hafði áður haft afskipti af fjölskyldunni en engin þeirra mála leiddu til sakfellingar.

Á samfélagsmiðlum hafði árásarmaðurinn einnig tjáð sig harðlega um málefni trans fólks og pólitíska umræðu tengda þeim réttindum. Í einni færslu daginn fyrir árásina varað hann við að gagnrýni gæti leitt til þess að fólk „gengi berserksgang“.

Sonurinn og móðirin meðal fórnarlamba

23 ára sonurinn var nýútskrifaður vélaverkfræðingur og hafði hafið störf hjá varnarmálafyrirtæki eftir starfsnám. Hann var fyrrverandi fyrirliði íshokkíliðs síns í framhaldsskóla og naut mikillar virðingar í íþróttasamfélaginu.

Móðirin lést á vettvangi, en sonurinn var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi skömmu síðar. Yngri sonurinn, 17 ára, varð vitni að árásinni úr leiknum sjálfum.

Afi og amma hins látna slösuðust einnig og eru sögð í lífshættu.

Lögregla telur að árásin tengist fjölskyldudeilunni en málið er enn í rannsókn.

Aðstandandi sem sagðist vera dóttir árásarmannsins sagði í viðtali að hann hefði glímt við geðræn vandamál.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing