Lærði óvænta lexíu í kosningabaráttunni

Hnikarr Bjarmi Franklínsson segir þverpólitískt samstarf í kosningabaráttunni hafa gjörbreytt sýn sinni á pólitíska andstæðinga. Fólkið sem hann hafði í huganum flokkað sem „öfgamenn“ reyndist bara vera aðilar sem hann átti mun meira sameiginlegt með en ekki.

Hnikarr greinir frá þessari reynslu sinni í færslu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Hann tók opinberlega þátt í umræðunni í byrjun júní og fékk síðar boð um að taka þátt í stofnun Ung gegn ESB-aðild, þverpólitísku samstarfi fimm ungliðahreyfinga.

Auglýsing

Hann viðurkennir að hafa þurft að hugsa sig vel um áður en hann þáði boðið.

„Það var skrítin tilhugsun fyrir hógværa miðjumanninn að fara að vinna með „pólitískum öfgamönnum“ af báðum vængjum stjórnmálanna,“ skrifar Hnikarr.

„Ein besta ákvörðun lífs míns“

Hnikarr ákvað að láta slag standa vegna þess hversu annt honum var um málstaðinn. Sú ákvörðun reyndist hafa mun meiri áhrif á hann en hann hafði gert ráð fyrir.

„Það reyndist vera ein besta ákvörðun lífs míns,“ segir hann.

Sumarið hafi verið krefjandi en um leið eitt það skemmtilegasta og mest þroskandi sem hann hafi upplifað. Þegar hann kynntist samstarfsfólki sínu betur hafi hann komist að því að þau voru ekki öfgamenn heldur einfaldlega fólk með aðrar skoðanir á ákveðnum málum.

Eftir því sem tíminn leið hafi orðið æ skýrara hversu margt þau ættu sameiginlegt.

„Það er nefnilega þannig að við einblínum oft of mikið á það sem skilur okkur að, í stað þess að einblína á það sem sameinar okkur,“ skrifar hann.

Mætir vinum í næstu kosningum

Nú þegar kosningabaráttunni er lokið segir Hnikarr skrítið að hugsa til þess að samstarfsfólkið fari aftur hvert í sinn flokk.

Reynslan hafi þó breytt því hvernig hann muni nálgast næstu Alþingiskosningar.

„Í næstu Alþingiskosningum mun ég ekki mæta pólitískum andstæðingum, heldur vinum mínum,“ skrifar hann, en Hnikarr er vel merktur FRamsókn á Facebook síðu sinni.

Hnikarr vill nýta reynsluna til að koma á þverpólitísku samstarfi ungra karlmanna, verkefni sem hann kallaði eftir í desember en hefur þurft að bíða meðan kosningabaráttan stóð yfir.

Hann biðlar nú til ungliðahreyfinga beggja fylkinga í ESB málinu um að leggja ágreininginn til hliðar og hjálpa sér að hrinda verkefninu í framkvæmd.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing