Leigubílstjórar velta fyrir sér hópmálsókn gegn ríkinu

Óánægja kraumar meðal leigubílstjóra sem telja sig hafa orðið fyrir miklu tjóni eftir breytingar á lögum árið 2022.

Í útvarpsþættinum Síðdegisútvarpið á Útvarpi Sögu lýstu tveir bílstjórar, Kristjana Kristjánsdóttir og Smári B. Ólafsson, ásamt Brynjólfi Sveini Ívarssyni lögfræðingi, yfir því að hópmálsókn gegn ríkinu væri nú raunverulegur möguleiki.

Auglýsing

Stéttin í frjálsu falli

Viðmælendur sögðu að margir hefðu þegar lagt niður starfsemi og að þeir sem enn væru í akstri stæðu frammi fyrir bæði tekjusamdrætti og auknum rekstrarkostnaði.

„Þetta hefur einfaldlega rústað stéttinni,“ sagði Kristjana og lagði áherslu á að eftirlit og aðgerðir stjórnvalda hefðu brugðist.

Hugmyndir um sameiginlega aðgerðir

Smári benti á að meðal bílstjóra væri vaxandi vilji til að sameinast um lögsókn þar sem ríkið hefði hvorki tryggt sanngjarnt samkeppnisumhverfi né verndað störfin.

„Við erum að tala um tekjumissi sem margir einfaldlega ráða ekki við,“ sagði hann.

Ábyrgðin lögð á ráðherra

Samkvæmt viðmælendum liggur ábyrgðin fyrst og fremst hjá samgöngu- og dómsmálaráðherra.

Þeir hafi ekki tryggt að ný lög myndu gera starfið betra heldur hafi kerfið orðið óskýrt og ófyrirsjáanlegt.

Dómstólar geti skorið úr

Brynjólfur Sveinn Ívarsson lögfræðingur sagði að dómstólar gætu á endanum þurft að skera úr um hvort ríkið beri bótaábyrgð gagnvart stéttinni.

Ef stjórnvöld grípi ekki tafarlaust inn í, væri hópmálsókn raunhæfur og líklegur næsti áfangi.

Hægt er að hlusta á allan þáttinn hér.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing