Líffræðileg kona ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í frisbígolfi í áratug

Konur eiga í vanda í stöku íþróttagreinum hér á landi. Því miður er engin umræða um málið. Hvað þarf til, að við Íslendingar stoppum þetta ofbeldi á konum?

Í frisbígolfi hafa karlmenn haldið á Íslandsmeistaratitli kvenna í tíu ár. Um er að ræða tvo einstaklinga sem skilgreina sig konur.

Auglýsing

Hvað gerist í sumar?

Í sumar er stórt mót. Konur hafa skráð sig, eins og vera ber. Karlmaður sem segist kona, hefur ákveðna líkamlega yfirburði og nýtur þess í keppni. Karlmaður er með meiri vöðvastyrk, snerpu og þol og því hefur hann ákveðinn ávinning af því að keppa við konur. Hann sigrar að sjálfsögðu.

Karlmenn hafa skipts á um sigurinn

Tveir karlmenn, sem skilgreina sig sem konu, hafa keppt í kvennaflokki í frisbígolfi hér á landi. Um fimm ára skeið bar annar þeirra einstaklinga sigur úr bítum og síðan tók hinn við og hefur sigrað konurnar undanfarin ár.

Í tíu ár hafa konur ekki sigrað í sínum eigin flokki og ekki fengið möguleika á að fara utan í Evrópukeppni frisbígolfara sem haldið er annað hvert ár.

Konur sem eru ósáttar fá að heyra það, þeim er sagt að þegja, sætta sig við þetta og viðurkenna karlana sem konur.

Kannski verður konunum vísað úr keppni svo karlmaður fái frið að keppa í kvennaflokki, maður spyr!

Hvar er Íþróttasamband Íslands? Hvar er Íslenska frisbigolfsambandið? Af hverju bera samböndin ekki hag kvenna fyrir brjósti? Af hverju eru konur í þessari íþrótt skjöldur fyrir karlmenn sem skilgreina sig sem konu, sem hafa styrk, þol og kraft karlmanns? Af hverju eiga konur að taka því þegjandi að karlmaður, sem segist kona, keppi í kvennaflokki? Hvar er réttlætið í slíkri keppni? Er ekki markmið íþrótta að keppa á jafnréttisgrundvelli?

Það er alls ekki jafnréttisgrundvöllur að konur keppi við karlmenn í frisbígolfi.

Réttlæti í kvennaflokkum

Olympíunefndin hefur sagt það skýrt, konur eiga að keppa við konur og karlar við karla. Engin undantekning. Er til of mikið mælst að Íþróttasambönd hér á landi virði rétt kvenna til réttlátrar keppni og að þær fái að keppa við eigið kyn?

Fælir karlmaðurinn, sem segist kona, konur frá?

Það má gefa sér það. Karlmaður sem segist kona hefur keppt aleinn því konur halda sig fjarri. Af hverju leyfum við karlmönnum, sem svona er ástatt um, að eyðileggja kvennaíþrótt, hver sem íþróttin er.

Hvar eru konur í kvennaíþróttum? Af hverju heyrist ekkert frá þeim? Hver á að bera hag kvenna í íþóttum fyrir brjósti?

Aðalfundur Íslenska frisbigolfsambandsins

Framundan er aðalfundur sambandsins, haldinn 9. apríl. Þar ættu menn að ganga fram fyrir skjöldu og verja kvennaflokkana og leyfa eingöngu konum að keppa í kvennaflokki. Banna karlmenn sem skilgreina sig sem konur frá kvennaflokkunum.

Formaður sambandsins Runólfur Helgi Jónasson hefur fengið spurningar um réttlætið sem konur búa við hjá sambandinu þegar kemur að keppni í kvennaflokki. Verður áhugavert að sjá svör hans fyrir hönd sambandsins.

Ég skora á stjórn sambandsins, sem og Íþróttasamband Íslands að verja kvennaíþróttir. Konur hafa haft mikið fyrir því undanfarna áratugum að fá leyfi til að stunda íþróttir og keppa. Við skulum ekki eyðileggja kvennaflokkana á þennan hátt.

Þegar íþróttaflokkum er ógnað af líffræði og sjálfsmynd krefst það skýrra reglna – jafnvel þó mörkin séu erfið. Þau mörk eiga ávallt að koma konum til góða og líffræðin að ráða.

Helga Dögg Sverrisdóttir

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing