Loftslagsumfjöllun dregst saman – sérfræðiblaðamenn missa störf

Umfjöllun um loftslagsmál í alþjóðlegum fjölmiðlum hefur dregist verulega saman á undanförnum misserum og sérhæfðir loftslagsblaðamenn hafa í auknum mæli misst vinnuna. Þróunin virðist ná bæði til Evrópu og Bandaríkjanna.

Í Bretlandi hefur breska dagblaðið The Guardian lengi verið í fararbroddi í loftslagsumfjöllun. Samkvæmt nýlegu yfirliti dróst umfang loftslagsfrétta miðilsins saman um 34 prósent á síðasta ári. Vestanhafs hafa svipaðar breytingar átt sér stað; CBS News hefur lagt niður sérstaka loftslagsdeild og The Washington Post sagði upp fjölda blaðamanna sem sinntu loftslagsmálum, þar á meðal 14 starfsmönnum í febrúar á þessu ári.

Auglýsing

Athyglin færist – ný átakamál taka yfir

Samkvæmt samantekt frá University of Colorado Boulder hefur alþjóðleg umfjöllun um loftslagsmál minnkað um 14 prósent á síðasta ári miðað við árið á undan. Þá sýna gögn að umfjöllunin náði hámarki árið 2021, þegar sænski loftslagsaðgerðarsinninn Greta Thunberg var hvað mest áberandi á alþjóðavettvangi.

Undanfarin misseri hefur Greta Thunberg hins vegar í auknum mæli látið til sín taka í öðrum pólitískum málum, meðal annars með stuðningi við málstað Palestínumanna í tengslum við átökin á Gaza. Sú þróun hefur vakið athygli og gagnrýni, og sumir telja að fókusinn hafi færst frá loftslagsmálum yfir í víðari pólitíska umræðu.

Á sama tíma hefur umfang loftslagsfrétta dregist saman um allt að 38 prósent frá toppnum árið 2021. Athygli fjölmiðla hefur í auknum mæli beinst að öðrum alþjóðamálum, þar á meðal stríðsátökum og efnahagsmálum.

Á meðan loftslagsumfjöllun stóð sem hæst var gjarnan reynt að tengja loftslagsbreytingar við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs. Til dæmis vakti athygli frétt BBC þar sem fjallað var um möguleg áhrif loftslagsbreytinga á bragðgæði bjórs, með vísan til rannsókna á áhrifum veðurfars á hráefni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing