Lögregla sögð hafa hylmt yfir með vopnuðum öfgamönnum þegar þeir lugu til um ástæðu fyrir banni ísraelskra stuðningsmanna

Nýjar upplýsingar sem hafa komið fram við skýrslugjöf lögreglunnar í West Midlands fyrir innanríkismálanefnd breska þingsins sýna að upphafleg ákvörðun um að banna ísraelskum stuðningsmönnum Maccabi Tel Aviv að mæta á Evrópuleik í fótbolta gegn Aston Villa á Villa Park byggðist á ótta við að öfgahópar í Birmingham væru að vopnast.

Það þýðir að skýring lögreglu, sem upphaflega var sú að hætta stafaði af stuðningsmönnum Maccabi Tel Aviv, var ekki sannleikanum samkvæmt.

Auglýsing

Samkvæmt gögnum sem nefndin hefur nú fengið staðfest var raunveruleg forsenda bannsins sú að lögreglan óttaðist að innlendir hópar í Birmingham kynnu að vopnbúast og beita ísraelska stuðningsmenn ofbeldi.

Þessar upplýsingar höfðu ekki komið fram opinberlega fyrr en nú.

Frásögninni síðar snúið við

Lögreglan lýsti ísraelsku stuðningsmönnunum sem „sérstaklega ofbeldisfullum“ og hélt því fram að þeir sjálfir væru hin raunverulega ógn.

Til stuðnings þeirri frásögn var vísað í meintar leyniupplýsingar frá hollenskum yfirvöldum um atvik tengd leik Maccabi Tel Aviv í Amsterdam árið 2024.

Hollensk yfirvöld hafa neitað að hafa veitt slíkar upplýsingar og þær upplýsingar finnast ekki í neinum gögnum sem lögregla hefur lagt fram.

Þingmenn sögðu í vitnisburði sínum frammi fyrir nefndinni að hér hefði verið um að ræða tilraun til að búa til eftiráskýringar til að réttlæta bann sem þegar hafði verið ákveðið.

Af hverju var hin raunverulega hætta ekki gefin upp?

Þegar innanríkismálanefndin spurði hvers vegna þessar mikilvægu upplýsingar, um hættu sem stafaði af vopnuðum innlendum hópum, hefðu ekki verið lagðar fram strax í upphafi, svaraði lögreglustjórinn því til að hann hefði einfaldlega ekki verið spurður að því.

Þetta svar vakti mikla reiði þingmanna, sem bentu á að slík rök jafngiltu því að segja: sannleikurinn hafi ekki verið sagður af því að enginn hafi spurt sérstaklega um eitthvað sem þingið gat ekki vitað um, einmitt vegna þess að lögreglan hafði ekki upplýst um það.

Nefndin gagnrýndi jafnframt að í skýringum lögreglu hafi ekki verið minnst á hættuna sem ísraelskir stuðningsmenn stóðu frammi fyrir á meðan hættan sem sögð var stafa frá þeim var stórlega ýkt.

Í fundargerðum Safety Advisory Group kom einnig fram að kjörnir fulltrúar í borginni hefðu þrýst á um að aðkomuliðinu yrði ekki hleypt á leikinn.

Samkvæmt GB News var um að ræða leiðtoga samfélags múslima í borginni og voru moskur í borginni hafðar með í ráðum þegar ákvörðunin um að banna komu stuðningsmenn ísraelska liðsins var tekin.

Frekari rannsóknir í gangi

Innanríkismálanefndin mun skila skýrslu um málið á næstunni og búist er við harðri gagnrýni á vinnubrögð lögreglu.

Jafnframt hefur verið fyrirskipuð sérstök rannsókn á þeim upplýsingum sem lögreglan lagði fram til að réttlæta bannið.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing