Lögregla stöðvaði sprengjuárás á tónleika Lady Gaga í Brasilíu

Aðgerð gegn öfgahópi sem nýtti sér nafn aðdáendahóps söngkonunnar

Brasilíska lögreglan hefur sagt frá því að hún hafi stöðvað sprengjuárás á tónleika Lady Gaga sem haldnir voru á Copacabanaströndinni í Ríó de Janeiro síðastliðinn laugardag.

Auglýsing

Um var að ræða stærstu tónleika ferils söngkonunnar til þessa, sem að sögn yfirvalda drógu að sér um 2,1 milljón manns.

Að sögn lögreglunnar og dómsmálaráðuneytisins stóð þekktur öfga hópur á bakvið áætlunina.

„Hópurinn var að virkja meðlimi, þar á meðal ólögráða einstaklinga, til samræmdra árása með heimagerðum sprengjum og Molotov kokteilum,“ sagði í yfirlýsingu frá lögreglunni.

Lady Gaga ekki látin vita af hættunni

Í yfirlýsingu frá talsmanni Lady Gaga kom fram að hópur hennar hafi ekki fengið neina viðvörun frá yfirvöldum fyrir eða á meðan á tónleikunum stóð.

„Við unnum náið með lögreglu að skipulagi og framkvæmd tónleikanna og öryggisráðstafanir voru taldar fullnægjandi,“ sagði í yfirlýsingunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing