,,Lögreglan á Akureyri hefur brotið grundvallarreglur lögreglunnar um gott siðferði og hlutleysi“

Það var sorglegt að aka fram hjá lögreglustöðinni á Akureyri laugardaginn 19. júlí. Í reynd varð pistlahöfundi mjög brugðið, fékk ónot um sig allan og ber ugg í brjósti. Ekki að ástæðulausu. Misþyrming á sakborningi augljós.

Á fánastöng lögreglunnar hékk baráttufáni trans Samtakanna 78 sem lögðu inn kæru til embættisins fyrir þó nokkru. Sú kæra, sem fjallar um skerðingu á tjáningarfrelsinu, er enn í vinnslu hjá lögreglunni sem þykir við hæfi að flagga baráttufána kæranda.

Auglýsing

Engin undra að maður velti fyrir sér hlutleysi stofnunarinnar og einstaka lögreglumönnum. Áhyggjurnar eru kannski ekki ástæðulausar.

Eins og Páll Vilhjálmsson orðaði það; ,,Lögregla sem ákærir trekk í trekk í þágu Samtakanna 78 og flaggar fána lífsskoðunarfélagsins er tæplega hlutlaust og málefnalegt yfirvald.“

Í ritgerð úr lögreglufræðum má lesa

,,Hlutverk lögreglunnar er í sinni einföldustu mynd að „gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstrun brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu.“ (Lögreglan, 3. október, 2023).“

Getur lögregla tryggt réttaröryggi þegar pólitísk yfirlýsing hennar blasir við mönnum svo ekki verður um villst? Í sannleika sagt, má draga það í efa.

Því skal ekki gleyma að trans Samtökin 78 eru hápólitísk samtök á framfærslu ríkisins.

Hlutleysi lögreglunnar

Í ritgerðinni má líka lesa ,,Lögreglan verður að vera hlutlaus og koma jafnt fram við alla, (feitletrun HDS) sem þýðir að ef lögreglumaður verður uppvís af mögulegu lögbroti ber honum skylda til að tilkynna það, hvort sem það er hjá almennum borgara eða öðrum lögreglumanni (Fekjær o.fl., 2014).“

Vissulega blasir við, að ef flöggun fánans er ekki á gráu svæði þá hlýtur að vera um lögbrot að ræða af hálfu embættisins, að flagga fána málsaðila hjá þeim sjálfum.

Áfram segir í ritgerðinni; ,,Það er því mikilvægt fyrir lögregluna að hjá henni starfi lögreglumenn sem hafi sterka réttlætiskennd og gott siðferði. Ef upp kemst um mál þar sem lögreglumenn eru staðnir að verki við að hlýða ekki skyldum sínum getur það skaðað traust, ekki bara til einstaka lögreglumanns heldur allrar stofnunarinnar. Það hefur sýnt sig að lögreglan á Íslandi nýtur mikils traust á meðal almennings (Guðmundur o.fl., 2024).“

Skaðar lögregluembættið orðspor hvers og eins lögreglumanns, eða eru það ákveðnir lögreglumenn sem standa fyrir svona sýnilegum stuðningi við kæranda? Af hverju þegja hinir?

Það væri óskandi að lögreglumenn og yfirmenn þeirra virði hið góða siðferði og hlutleysi sem lögreglunni ber að sýna, að flagga fána kæruaðila er ekki gott siðferði hvað þá hlutleysi.

Vinna lögreglunnar byggir á trausti

Löggæsla er einn af hornsteinum nútímasamfélags. Hún byggist á trausti við þegna og samfélagið í heild. Að fara eftir þeim gildum sem krafist er af lögreglu, heiðarleika, hlutleysi og gott siðferði ætti að vera forgangsmál lögreglunnar. Pistlahöfundi finnst lögreglan á Akureyri hafa brugðist þeirri skyldu sinni með því að sýna afstöðu með ákveðnum kæranda og pólitískum öflum.

Velta má upp þeirri spurningu hvort lögreglan hafi misnotað vald sitt og réttindi til að sýna einum hug sinn fram yfir annan og þannig hundsa hlutleysisskyldu sínu. Öðru vísi verður fáninn ekki skilinn, stuðningur sýndur í verki.

Í Bretlandi er þetta bannað

Lesbían, Linzi Smith, höfðaði mál gegn bresku lögreglunni vegna máls af svipuðum toga, vegna tákna. Hún kærði lögregluna fyrir að bregðast hlutleysishlutverki sínu. Linzi vildi óháða lögreglu.

Til að gera langa sögu stutta þá vann hún málið. Lögreglan má ekki flagga eða skreyta sig með pólitískum táknum né táknum kynjabaráttunnar sem er í eðli sínu trúarlega og pólitísk.

Vilja ekki allir hlutlausa lögreglu, þannig að réttur allra sé tryggður? Jú, að sjálfsögðu. Því trausti hefur lögreglan á Akureyri brugðist og hún hefur gefið til kynna með sýnilegum hætti að hún er ekki hlutlaus.

Lögreglan á Akureyri hefur brotið grundvallarreglur lögreglunnar um gott siðferði og hlutleysi.

Helga Dögg Sverrisdóttir

Heimild

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing