Bresk lögregluyfirvöld hyggjast leggja niður kerfi svokallaðra non-crime hate incidents (NCHI), en það eru atvik sem ekki teljast refsiverð en eru skráð sem hatursorðræða eða fordómafull hegðun.
Tillögur um nýtt, einfaldara og skynsamlegra fyrirkomulag verða lagðar fyrir innanríkisráðherra á næsta ári og er búist við pólitískum stuðningi við breytingarnar.
Talið grafa undan tjáningarfrelsi
Samkvæmt heimildum telja lögreglustjórar að núverandi kerfi sé ekki lengur hæft til notkunar.
Helsta gagnrýni á kerfið hefur verið sú að skráning NCHI grafi undan tjáningarfrelsi, taki tíma frá rannsókn raunverulegra brota og setji lögreglu í erfiða stöðu í pólitískum og menningarlegum ágreiningi.
Í stað NCHI á að taka upp nýtt kerfi þar sem aðeins alvarlegustu tilvik verði skráð, og þá sem hluti af alvarlegri andfélagslegri hegðun.
Minni háttar atvik yrðu ekki færð í opinberar gagnaskrár eins og nú er gert.
Kerfinu umbylt
Formaður College of Policing, Lord Herbert, segir breytingarnar fela í sér grundvallarbreytingar á kerfinu.
„Kerfinu verður hent út og nýtt, allt öðruvísi fyrirkomulag tekið upp,“ sagði hann í samtali við breska fjölmiðla. „Ekkert slíkt verður lengur skráð í glæpagagnagrunna. Þetta er algjör stefnubreyting.“
Hann bætti við að umdeildar handtökur og rannsóknir, á borð við mál sem vakið hafa mikla athygli undanfarin ár, myndu ekki eiga sér stað með nýju kerfi.
Mál Graham Linehan nefnt sem dæmi
Eitt þeirra mála sem vísað er til er handtaka rithöfundarins og grínistans Graham Linehan, sem var handtekinn á Heathrow flugvelli fyrr á árinu vegna færslna á samfélagsmiðlinum X.
Þar hafði hann tjáð sig um karla í kvennaklefum.
Málið var síðar fellt niður án ákæru.
Samkvæmt Lord Herbert hefði slík rannsókn ekki farið af stað undir nýju regluverki.
Geta birst í bakgrunnsathugunum
Svokölluð non-crime hate incidents hafa hingað til verið skilgreind sem hegðun sem telst fjandsamleg eða fordómafull gagnvart einstaklingi á grundvelli einkenna á borð við kynþátt, trúarbrögð, fötlun, kynhneigð eða kynvitund.
Slík atvik geta verið skráð til langs tíma og jafnvel komið fram í bakgrunnsathugunum.
Í október tilkynnti Metropolitan Police í London að hún myndi hætta að rannsaka NCHI, þar sem yfirstjórn taldi lögreglumenn ekki eiga að taka þátt í menningarstríði á netinu.
NCHI-kerfið var upphaflega tekið upp árið 1999 í kjölfar opinberrar rannsóknar á morðinu á Stephen Lawrence, með það að markmiði að fylgjast með hatri og spennu innan samfélagsins. Gagnrýnendur telja þó að aðstæður hafi breyst verulega síðan, einkum með tilkomu samfélagsmiðla.
Nýju tillögurnar gera ráð fyrir að lögreglumenn fái skýran gátlista sem eigi að koma í veg fyrir íhlutun vegna umdeildra ummæla á netinu, nema raunveruleg ógn eða refsiverð háttsemi sé til staðar.