Lögreglan leitar að ónefndum manni – biður almenning um aðstoð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt mynd af manni sem hún óskar eftir að ná tali af og biður hann, eða þá sem þekkja hann, um að hafa samband hið fyrsta.
Í tilkynningu sem birt var í dag segir að sá sem greinir má sjá á meðfylgjandi mynd sé vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Þeir sem telja sig þekkja manninn, eða vita hvar hann er að finna, eru einnig hvattir til að hringja í lögregluna eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.
„Þótt myndin sé eilítið óskýr má ætla að hún geti gefið góða vísbendingu um hver maðurinn er,“ segir í færslu lögreglunnar. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar um ástæður þess að lögreglan vill ná tali af manninum.
Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing