Lögregluhneyksli í London – Falin myndavél sýnir lögreglumenn hæðast að fórnarlömbum nauðgana

Metropolitan lögreglan í London stendur frammi fyrir nýju hneyksli eftir að BBC Panorama birti upptökur úr földum myndavélum sem sýna lögreglumenn við Charing Cross stöðina tjá sig með óviðeigandi hætti.

Í þættinum, sem sýndur var miðvikudagskvöldið 1. október, kom fram að hópur starfandi og fyrrverandi lögreglumanna segjast hvað eftir annað hafa hugsað um að skjóta innflytjendur, gera lítið úr nauðgunarfórnarlömbum og lýstu með einskonar stolti hvernig þeir beittu grófu ofbeldi gegn sakborningum.

Auglýsing

„Annaðhvort á að skjóta hann eða senda hann úr landi,“ heyrist einn lögreglumaður segja um innflytjanda. Annar lýsir því hvernig hann „elski að taka fingraför með valdi því hann geti valdið alvarlegum meiðslum þannig“.

Yfirmaður lögreglunnar biður almenning afsökunar

Yfirmaður lögreglunnar, Sir Mark Rowley, baðst opinberlega afsökunar og sagði hegðun starfsmannanna ófyrirgefanlega.

Hann staðfesti að níu lögreglumenn, einn fyrrverandi lögreglumaður og einn fangavörður hafi þegar verið sendir í leyfi eða fjarlægðir úr störfum, og að málin verði tekin fyrir í sérstakri flýtimeðferð innan nokkurra vikna ef sekt þeirra verður sönnuð.

„Svona hegðun eyðileggur traust samfélagsins til lögreglunni. Ég bið samfélagið afsökunar á þessu,“ sagði Rowley.

Þekktur fréttamaður með falda myndavel

Upptökurnar voru teknar af Rory Bibb, fréttamanni Panorama, sem starfaði með leynd í sjö mánuði sem fangavörður íCharing Cross í miðborg London.

Þar náði hann meðal annars á myndband:

  • Lögreglumönnum sem kölluðu múslima „ógæfuþjóð“ og sögðu íslam vera „vandamál“
  • Samstarfsfólki sem talaði opinskátt um kynferðislegar fantasíur með konum sem voru í haldi
  • Upplýsingum um hvernig lögreglumenn fölsuðu frásagnir og skýrslur og beittu fanga ofbeldi

Gömul hneyksli á sömu stöð

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Charing Cross stöðin lendir í slíkum hneykslismálum.

Árið 2022 neyddist þáverandi yfirmaður lögreglunnar, Dame Cressida Dick, til að segja af sér eftir rannsókn sem sýndi að 19 lögreglumenn á stöðinni höfðu deilt skilaboðum um nauðganir, ofbeldi gegn konum og gyðingahatur.

Viðbrögð stjórnmálamanna og samtaka

Borgarstjóri London, Sadiq Khan, sagði hegðun lögreglumannanna „ógeðfellda og óásættanlega“ og að hann styddi áframhaldandi rannsókn.

Khan hefur ítrekað lagst gegn rannsókns á pakistönskum nauðgunargengjum í borginni.

„Það verður að uppræta slíka hegðun,“ sagði Khan. Innanríkisráðherra Bretlands, Shabana Mahmood, sagði málið vera hneyksli og að lögreglan hefði fulla heimild til að reka þá sem ekki uppfylli siðferðiskröfur starfsins.

Sjálfstæða eftirlitsstofnunin IOPC hefur nú hafið rannsókn á ellefu aðilum fyrir möguleg brot á starfsreglum lögreglunnar, þar á meðal rasisma, kvenfyrirlitningu, fölsun í skýrslugerð og ofbeldi í starfi.

Metropolitanlögreglan hefur tilkynnt að teymið í fangageymslu Charing Cross hafi verið leyst frá störfum eða starfsmenn fluttir til.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing