Lygin stóra og hlutlausu fjölmiðlarnir

Fyrir rúmri viku síðan sögðu við hér á Nútímanum frá því að BBC, móðir allra heilagra ríkisútvarpa, hefði verið staðið að því að falsa gróflega ræðu Donald Trump Bandaríkjaforseta til að láta almenning halda að hann hefði hvatt til óeirða fyrir utan þinghúsið í Washington þann 6. Janúar 2021. Við höfum reyndar oft áður farið yfir hvernig sú lygi var kokkuð upp en þetta hefur nú verið rækilega staðfest.

Það kom síðan ekkert sérstaklega á óvart að þó við hefðum greint frá þessu fyrir viku, þá hafði enginn íslensku meginstraumsmiðlanna fyrir því að segja svo mikið sem orð um þetta, fyrr enn að bæði útvarpsstjóri og fréttastjóri BBC sögðu af sér vegna málsins nokkrum dögum síðar.

Auglýsing

En hvers vegna ætli það hafi verið? Hvers vegna fannst RÚV, Mbl, Vísi eða fréttastofu Sýnar þetta ekki frásagnavert þegar það var afhjúpað? Gæti það verið vegna þess að þessir sömu miðlar sitja bara í nákvæmlega sömu súpunni og BBC? Það er að segja að þessir sömu miðlar eru orðnir svo uppteknir af því að verja eigin frásagnarramma að þeir sjá ekki lengur neitt sem fellur utan hans. Þegar BBC missir tökin á eigin áróðursvél, þá horfa íslensku miðlarnir ekki á það sem frétt – heldur sem vandræðalegt augnablik sem best sé að hunsa. Ekki vegna þess að það sé ómerkilegt, heldur vegna þess að það speglar þá sjálfa.

Samstaða hinna heilögu

Hvernig eiga RÚV eða Sýn að fjalla um fjölmiðil sem er staðinn að því að klippa til og snúa máli þannig að rétt pólitísk niðurstaða standi? Hvernig eiga þeir að segja almenningi frá því að BBC hafi logið – þegar þeir hafa í mörg ár byggt sinn eiginn trúverðugleika á því að BBC sé „gullstaðall“ fréttamennskunnar?

Það er nefnilega vandamálið: þegar móðurskip fjölmiðla­nna er staðið að verki, hrynur ættbálkakerfið. Allt í einu er ekki hægt að ýta ábyrgðinni til hliðar, segja að þetta séu „jaðarmiðlar“ eða „hægri-öfgasíður“. Allt í einu er þetta bara gömul og góð stofnanavaldbeiting – klædd upp í hlutleysisbúning með þriggja stafa merki í horninu.

Skoðanamótun en ekki fréttaflutningur

Það sem gerðist í tilfelli BBC er ekki tilviljun og ekki mistök. Þetta er afleiðing menningar þar sem markmiðið er ekki lengur að upplýsa, heldur að móta. Að ekki bara segja fréttir, heldur að stýra því hvaða skilningur á þeim er leyfður. Þetta er sama menning og margir íslenskir fjölmiðlar hafa alið innan sinna raða.

Og þegar slík menning er orðin ríkjandi, þá er ekkert óeðlilegt við að stórfrétt um staðfesta fjölmiðlafölsun sé þögguð. Hún gengur gegn sjálfsmynd kerfisins – og það ver sjálft sig fyrst.

En kannski er þetta bara byrjunin. Þegar bresk skip fara að leka, fer smátt og smátt að skanka í íslenska flotanum líka. Að lokum stendur eftir spurningin: hversu margir vilja enn halda í söguna um hlutlausar stofnanir, þegar reykurinn og speglarnir liggja berskjaldaðir eftir á gólfinu?

Það verður fróðlegt að sjá hvaða miðill þorir næstur að horfast í augu við það. Ekki bara hvað BBC gerði – heldur hvað það segir um þá sjálfa.

Frosti Logason – Ritstjóri Nútímans

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing