Í þættinum Spjallið á Brotkast.is ræðir Frosti Logason við Eld Smára Kristinsson, sem hefur um árabil verið umdeildur í opinberri umræðu.
Eldur gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjalla um ítrekað um hann án þess að leita eftir viðbrögðum hans eða viðtali.
Í viðtalinu segir Eldur að upphaf umdeildrar umræðu, sem hann hafi sjálfur blandað sér í, megi rekja til fréttar BBC um að karlar geti gefið börnum brjóst.
„Þetta er svo súrrealískt,“ segir hann og bætir við að aðrir miðlar hafi síðan „apað eftir BBC“ án þess að kanna málið sjálfir.
Hann bendir á að Samtökin ’78 hafi vísað í þessa umræðu þegar þau kærðu hann fyrir ummæli hans um brjóstagjöf karla.
Eldur segir þó að bresk heilbrigðisyfirvöld hafi síðar leiðrétt upplýsingarnar og að málið hafi byggst á „aktivistagjörningi“ innan NHS í Sussex.
Hann gagnrýnir að hvorki BBC né íslenskir fjölmiðlar hafi birt leiðréttinguna.
„Stóð í Héraðsdómi að útskýra að karlar geti ekki gefið brjóst“
Eitt atriði sem Eldur lýsir er hvernig framangreind umræða rataði inn í dómsmáli hans gegn starfsmann RÚV.
„RÚV ætlaði að ná einhverju svakalegu höggi á mig með þessu skjáskoti,“ segir hann, en skjáskotið var hluti af kæru Samtakanna ’78 vegna ummæla hans um brjóstagjöf.
„Það var svo súrrealískt að þurfa að sitja í réttarsal og standa með þeirri staðreynd að karlar geta ekki gefið á brjóst,“ segir hann og bætir við að ekkert bendi til að slíkt sé líffræðilega mögulegt eða gagnlegt fyrir barn.
RÚV vann málið í Héraðsdómi, meðal annars á þeim forsendum að Eldur væri opinber persóna.
Eldur mótmælir því:
„Ég væri kannski opinber persóna ef RÚV hefði einhverntíman boðið mér plattform til að útskýra mín sjónarmið. Það hefur aldrei verið gert.“
Segir fjölmiðla „tala um hann en aldrei við hann“
Eldur segir alla meginstraumsfjölmiðla hafa sniðgengið sig ítrekað þrátt fyrir að þeir hefðu allir skrifað mikið um hann. Segist hann ítrekað hafa sent fjölmiðlum tölvupósta með óskum um andmælarétt eða viðtöl, en að því hafi aldrei verið svarað.
Frosti bendir á að Eldur hafi gegnt ýmsum opinberum hlutverkum, til dæmis sem formaður Samtakanna ‘22.
„Það er bara mjög merkilegt að þú hafir aldrei fengið viðtal,“ segir Frosti
„Ég held að ég sé bara á einhverjum bannlista,“ svarar Eldur.
Fullyrðir að WPATH afhjúpun hafi verið hundsuð af stóru miðlunum
Í þættinum ræðir Eldur einnig um nýjan yfirlækni á transdeild Landspítalans, Asa Radix, en hún er einnig forseti WPATH, alþjóðlegra samtaka um meðhöndlun kynáttunarvanda, en samtökin voru á síðasta ári miðpunktur mikils hneykslismiðpunktur mikils hneykslis þegar gögn frá þeim láku út í opinbera umræðu.
Eldur segir frá blaðamannafundi sem haldinn var í Reykjavík um málið þar sem hinn mikilsvirti rannsóknarblaðamaður Michael Shellenberger greindi frá innihaldi lekans.
Hann segir að enginn meginstraumsmiðill hafi mætt, þrátt fyrir að um sé að ræða mál sem margir stórir erlendir fjölmiðlar sögðu frá.
„Við vorum boikottuð af Stöð 2, RÚV og öðrum,“ segir hann. „Hefðu þeir kafað ofan í þessi skjöl þá hefði það verið stórfrétt að forseti WPATH væri ráðinn yfirlæknir á Landspítanum.“
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu við Eld Smára en ef þú vilt sjá allan þáttin geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.