Maduro í handjárnum um borð í bandarísku herskipi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, birti rétt í þessu mynd á samfélagsmiðli sínum Truth Social þar sem hann fullyrðir að forseti Venesúela, Nicolás Maduro, sé um borð í bandaríska herskipinu USS Iwo Jima.

Með myndinni fylgdu orðin:

„Nicolas Maduro on board the USS Iwo Jima.“

Auglýsing

Á myndinni má sjá Maduro handjárnaðan í gráum íþróttafötum með eyrnahlífar og augnhlíf, ásamt því að halda á vatnsflösku.

Fyrr í dag sagði Trump að verið væri að flytja Maduro til New York. Þar er hann sagður eiga að koma fyrir alríkisdómstól hvar hann hefur verið ákærður fyrir fíkniefnahryðjuverk, kókaíninnflutning og vopnahald.

Hvorki Hvíta húsið né yfirvöld í Venesúela hafa brugðist formlega við birtingunni að svo stöddu.

Bandaríkin gera loftárásir í Venesúela – Maduro og eiginkona hans handtekin

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing