Margrét gagnrýnir RÚV harðlega og segir þá gefa Semu Erlu pláss til að dreifa lygum um sig þrátt fyrir sýknudóm.

Margrét Friðriksdóttir er ósátt við umfjöllun um sig og fleiri í þáttunum Hatur og segir að þar hafi fólki verið leyft að dreifa lygum sem hún hefur verið sýknuð af fyrir dómi.

Nútíminn heyrði í Margréti vegna færslu sem hún ritaði á Facebook síðu sína en hún segir hana jafnframt vera fréttatilkynningu til fjölmiðla.

Auglýsing

„Sema Erla er enn að saka mig opinberlega um að hafa sent henni tugi hatursskilaboða, meðal annars í nýjasta þættinum Hatur á RÚV,“ segir Margrét Friðriksdóttir en Sema Erla var einn að viðmælendum í þáttunum Hatur sem sýndir voru á RÚV í vikunni.

Þar segir Margrét að Sema hafi sakað hana meðal annars um hatursglæpi og er ósátt við vinnubrögð RÚV þar sem Margrét var sýknuð af þeim ásökunum í Landsrétti.

Hún telur að með því að endurtaka þessar ásakanir opinberlega sé Ríkisútvarpið að taka virkan þátt í því að sverta mannorð hennar og senda hættuleg skilaboð til almennings.

„Þetta eru sömu skjáskotin og hún fór með til lögreglu, þau eru opinber og allir geta séð þau. Ég hvet fólk til að spyrja sig: Hvar er hatrið?“

Hún segir það sérstaklega undarlegt að Sema fái pláss í sjálfur ríkissjónvarpinu á þessum tíma þar sem hún sæti sjálf sakamálarannsókn.

„RÚV hlustar ekki á hina hliðina“

Margrét segist aldrei hafa fengið tækifæri til að svara fyrir sig í umræddum þáttum né verið haft samband við hana við undirbúning þeirra.

„Þetta er gróf brot á siðareglum fjölmiðla og jafnframt á jafnréttisreglunni. Ég óska að fá að mæta í beina útsendingu með þessi gögn og svara fyrir mig. Það að hún fái að halda þessu fram án andsvara er skýrt dæmi um hatursorðræðu gegn mér á vegum ríkismiðils.“

Í siðareglum segir meðal annars:

„Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. [Hún skal virða mannréttindi og jafnrétti, og einnig friðhelgi einkalífs nema lýðræðishlutverk fjölmiðlaveitu og upplýsingaréttur almennings krefjist annars.] 1)Fjölmiðlaveita skal gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni [í fréttum og fréttatengdu efni] 1) og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna. „

Líkir Semu við „sjúkan eltihrelli“

„Ég get ekki lesið þetta öðruvísi en sem að ég eigi mér stalker. Konan virðist hafa legið yfir öllu sem ég skrifa á netinu í mörg ár og tekið skjáskot af öllu saman,“ segir Margrét. „Að kalla það sem ég hef skrifað hótanir er hrein sturlun.“

Hún bætir við að Sema hafi áður sakað fjölmarga aðra opinbera einstaklinga um sams konar hegðun og telur þetta hluta af persónulegri þráhyggju hennar.

Íhugar að leita réttar síns

Margrét segir að hún hafi leitað til lögmanns og íhugi nú að kæra málið.

„Ef samfélagið samþykkir að svona framkoma komist í gegnum RÚV, án þess að hinn aðilinn fái að tjá sig, þá getur hver sem er verið næstur. Þarna er bara verið að gefa skotleyfi á fólk.“

Hún segir jafnframt að ef RÚV synji henni um að koma og svara í beinni, verði það sent til siðanefndar fjölmiðla.

Hún segist setja stórt spurningamerki við persónuleg tengsl þáttagerðarmanna við ráðandi öfl en þættirnir eru gerðir af Cetchup Productions sem er í eigu Ingileifar Friðriksdóttur sem er aðstoðarmaður utanríkisráðherra og eiginkona Maríu Rutar Friðriksdóttur, þingkonu Viðreisnar.  Þá hafi þættirnir hlotið styrk frá Barna- og Menntamálaráðuneytinu.

Samúð með öðrum sem lent hafa í þessu

Þetta er bara það sama og margir karlmenn urðu fyrir í MeToo, fólk ásakað án þess að fá að verja sig og jafnvel eftir að það er sýknað heldur árásin áfram.“

„Ég vil ekki þöggun, ég vil samstöðu. Það eru skelfilegt að svona þættir fái að fara í loftið óritskoðaðir, og ég hvet alla til að skoða gögnin og dæma sjálfir.“

Ekki náðist í Ingileifu við gerð fréttarinnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing