Marine Le Pen meinað að bjóða sig fram til opinberra starfa næstu fimm árin

Leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi (Rassemblement National), Marine Le Pen, hefur verið dæmd í fimm ára bann frá því að gegna opinberu embætti.

Dómurinn útilokar hana frá því að bjóða sig fram í forsetakosningunum árið 2027 en hún þótti sigurstrangleg ef marka má niðurstöður frönsku kosninganna.

Dæmd fyrir misnotkun á opinberu fé

Auglýsing

Le Pen var fundin sek um að hafa misnotað fjármuni Evrópusambandsins til að fjármagna starfsemi RN flokks síns í Frakklandi.

Hún og yfir tuttugu aðrir flokksmenn voru ákærð fyrir að ráða aðstoðarmenn í nafni Evrópuþingsins sem unnu í raun fyrir RN í Frakklandi, og greiða þeim með með fé sem kom frá ESB.

Dómurinn felur einnig í sér fjögurra ára fangelsisdóm. Tveimur árum verður fullnægt með rafrænu öryggisarmi í stað fangelsisvistar, en hin tvö verða skilorðsbundin.

Hún var jafnframt dæmd til að greiða 100.000 evra sekt.

Le Pen yfirgaf réttarsalinn áður en dómari hafði lokið við að lesa upp úrskurðinn.

Högg fyrir lýðræðið?

Lögmaður hennar hefur lýst dómnum sem „höggi fyrir lýðræðið“ og staðfest að honum verði áfrýjað.

Jordan Bardella, forseti RN og mögulegur forsetaframbjóðandi flokksins árið 2027, lýsti yfir stuðningi við Le Pen og sagði að „franska lýðræðið hafi verið líflátið“.

Dómurinn hefur vakið víðtækar viðbrögð, bæði innan Frakklands og erlendis.

Evrópuþingið fagnar dómnum

Yfirstjórn Evrópuþingsins fagna niðurstöðunni, en leiðtogar þjóðernissinna víða um Evrópu fordæma hana harðlega.

Geert Wilders, Viktor Orban og Matteo Salvini eru meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við Le Pen og gagnrýnt dómstólinn.

Ekki er langt síðan þingmaður Evrópusambandsins lýsti því yfir að öllum ráðum yrði beitt til að „vernda lýðræðisskjöld Evrópu.“

Marine Le Pen hyggst tjá sig opinberlega síðar í dag.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing