Mark Zuckerberg flytur frá Kaliforníu til að forðast auðmannaskatt sem stendur til að setja á í fylkinu

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og forstjóri Meta, hefur keypt hús í Flórída sem kostaði rúmlega 200 milljónir dollara og hyggst flytja frá Kaliforníu. Þetta kemur fram í umfjöllun Sky News Australia, þar sem greint er frá því að nýja heimilið hafi þegar fengið viðurnefnið „Milljarðamæringabyrgið“.

5% auðlegðarskattur til umræðu

Samkvæmt Sky News Australia stendur nú til í Kaliforníu um að innleiða 5% auðlegðarskatt á einstaklinga sem metnir eru á yfir milljarð dollara, en skatturinn yrði í formi eingreiðslu. Fyrir Zuckerberg myndi slíkur skattur vera um 11 milljarðar dollara.

Auglýsing

Í umfjölluninni er bent á að Kalifornía sé nú í hættu að missa bæði tæknifyrirtæki og tekjuhæstu skattgreiðendur til annarra fylka ef slíkar fyriráætlanir verða að veruleika.

Gagnrýni á skattkerfið

Í fréttinni er jafnframt vísað til dæmis um skattlagningu tengda Ofurskálinni (Superbowl), sem haldin var í Kaliforníu. Þar er fullyrt að leikmenn sem dvöldu í ríkinu í viku hafi þurft að greiða tekjuskatt miðað við heildartekjur ársins, en ekki einungis greiðsluna sem þeir fengu fyrir þátttöku í leiknum sjálfum.

Samkvæmt umfjöllun Sky News Australia hafi sumir leikmenn þurft að greiða hærri skatt en sem nam verðlaunafé þeirra fyrir sigur í Ofurskálinni.

Í fréttinni er einnig bent á að Zuckerberg hafi lengi stutt Demókrataflokkinn, en að flutningur hans sé túlkaður sem merki um að jafnvel stuðningsmenn flokksins vilji ekki búa við slíka skattastefnu.

Zuckerberg sjálfur hefur hvorki staðfest af eða á hvort flutningurinn tengist auðlegðarskattinum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing