Meint ólögleg sala áfengis stöðvuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist í tilkynningu hafa haft eftirlit með ólöglegri sölu áfengis víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í nótt. Er þar greint frá að verslunum hafi verið lokað á fjórum stöðum þar sem grunur lék á að áfengi hafi verið selt með ólögmætum hætti. Forsvarsmenn eru grunaðir um brot á reglugerð um smásölu og veitingar áfengis.

Tveir einstaklingar voru jafnframt handteknir og vistaðir í fangageymslu grunaðir um framleiðslu og sölu fíkniefna, peningaþvætti og vörslu fíkniefna. Málið er í rannsókn samkvæmt lögreglu.

Auglýsing

Þá barst tilkynning um reyk í fjölbýlishúsi, en um var að ræða minniháttar eld. Slökkviliðið annaðist reykræstingu.

Einnig var einn maður handtekinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll og vörslu fíkniefna. Hann var vistaður í fangaklefa og er málið til rannsóknar. Í öðru tilviki þurfti lögregla að aðstoða mann í vímuefnaástandi og var hann fluttur heim til sín.

Lögregla brást einnig við tilkynningu um hóp manna sem réðist á einn einstakling, þar sem einn átti að hafa verið vopnaður skóflu. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist málið þó minniháttar og var afgreitt á staðnum. Þá komu fram nokkrar tilkynningar um samkvæmishávaða og grunsamlegar mannaferðir.

Ölvunar- og fíkniefnaakstur víða í umferðinni

Einnig  var talsvert um afskipti af ökumönnum í Reykjavík í nótt. Nokkrir þeirra eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og í einu tilviki einnig undir áhrifum áfengis. Einn þeirra hafði ekki gild ökuréttindi. Þeir voru lausir að lokinni sýnatöku. Einnig var tilkynnt um innbrot í gám og var verkfærum stolið. Það mál er til rannsóknar.

Í alvarlegasta umferðarmáli gærkvöldsins veitti lögregla ökumanni eftirför eftir að hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Ökumaður ók langt yfir leyfðum hámarkshraða og skapaði þannig verulega hættu. Beita þurfti lögreglubifreiðum til að stöðva hann og var hann að lokum handtekinn. Hann var vistaður í fangaklefa og er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur meðan hann er sviptur ökuréttindum, vörslu fíkniefna og að hafa ekki sinnt fyrirmælum lögreglu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing