Meira um Kára og Decode í Epstein Skjölunum

Ný gögn úr svonefndum Epstein-skjölum varpa frekara ljósi á tengsl sem rædd voru í tölvupóstsamskiptum á árunum 2009 til 2013 við íslenska líftæknifyrirtækið DeCode Genetics og forstjóra þess, Kára Stefánsson. Gögnin sýna meðal annars að samstarfsmaður Jeffrey Epstein hafi verið sendur til Íslands til að „hitta DeCode“ og að rætt hafi verið um mögulegt samstarf við Kára í tengslum við fjármögnun og sjóði tengdum Bill Gates.

Sendur til Íslands að hitta DeCode

Í tölvupósti dagsettum 30. september 2011 kemur fram að breski fjárfestingaráðgjafinn Ian Osborne hafi farið til Íslands til að „hitta Decode“. Tveimur dögum síðar segir Osborne í öðrum tölvupósti frá hádegisverði með Kára Stefánssyni og að hann hyggist ræða við Epstein síðar sama dag um mögulegt samstarf, meðal annars með aðkomu Pritzker-fjölskyldunnar og Gates-sjóða.

Auglýsing

Daginn eftir spyr Epstein í tölvupósti: „What did you think of Kari?“

Þá bendir annað skjal frá árinu 2013 til þess að Epstein hafi átt fund sem merktur er „decode tomorrow“, sem gæti vísað til fundar við DeCode eða fulltrúa þess.

Hugmyndir um kaup á DeCode

Í eldri gögnum frá árinu 2009, þegar DeCode stóð frammi fyrir alvarlegum fjárhagsvanda, má finna tölvupósta þar sem lagt er til að Epstein skoði möguleikann á að kaupa fyrirtækið. Slíkar hugmyndir voru ræddar af þriðju aðilum og virðast ekki hafa gengið eftir.

Kári Stefánsson í Epstein-skjölunum

Viðbrögð Kára

Nútíminn sló á þráðinn til Kára Stefánssonar sem segist ekkert kannast við Ian Osborne og hafnar því alfarið að hafa átt nokkur samskipti við Jeffrey Epstein.

„Mig rekur ekki minni til að hafa hitt þennan Osborne nokkurn tímann, og þetta nafn hringir satt að segja engum bjöllum hjá mér. Ég veit bara ekkert hver þessi maður er,“ segir Kári í samtali við Nútímann.

Hann segist jafnframt aldrei hafa hitt Epstein né átt við hann nein samskipti.
„Það er alveg ljóst að ég hef aldrei nokkurn tímann hitt Jeffrey Epstein eða átt við hann nokkur samskipti. Bara aldrei.“

Kári bætir við að ef fjárfestir eins og Epstein hefði á sínum tíma boðist til að greiða úr fjárhagsvanda DeCode hefði hann að öllum líkindum verið tilbúinn að funda með viðkomandi, enda hafi hann á þeim tíma ekkert vitað hver Epstein væri.

„En sannleikurinn er sá að ég hef bara aldrei nokkurn tímann hitt Jeffrey Epstein eða átt við hann neins konar samskipti.“

Engin staðfesting á beinum samskiptum

Gögnin sem nú hafa komið fram sýna að Epstein og samstarfsmenn hans ræddu um Kára og DeCode, sendu mann til Íslands og virðast hafa íhugað fjárfestingu eða samstarf. Hins vegar liggur ekkert fyrir í skjölunum að Kári Stefánsson hafi átt bein samskipti við Epstein sjálfan, né að fundur milli þeirra hafi farið fram.

Skjal 1

Skjal 2

Skjal 3

Skjal 4

Hér má sjá skjal 1 úr því nýjasta sem birt var

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing