Mest lesnu fréttir á Nútímanum árið 2025

Á Nútímanum var fjallað um fjölda mála sem snertu stjórnmál, réttarkerfið og samfélagsumræðu, bæði hér heima og erlendis.

Málin höfðu mismikil áhrif á heimsmálin en öll áttu það sameiginlegt að vekja mikla umræðu og verða meðal þeirra frétta sem flestir kusu að lesa og deila.

Auglýsing

Nútíminn óskar lesendum sínum gleðilegs árs og vonum að sem flestir fylgi okkur inn í það nýja.

Hér fyrir neðan má sjá mest lesnu fréttir Nútímans á árinu, þar sem stiklað er á stóru um hvert mál og rifjað upp hvers vegna það vakti svo mikla athygli.

 

Lestur stjörnumerkjanna sló í gegn

Meðal mest lesnu efna ársins voru léttari og skemmtilegri greinar um stjörnumerki og kynlíf, sem vöktu mikla athygli. Þar á meðal voru greinarnar „Það villtasta sem þú gerir í rúminu“ og „Uppáhaldskynlífsathafnir stjörnumerkjanna“, þar sem farið var yfir kynferðislegar tilhneigingar og smekk fólks út frá stjörnumerkjum.

Stjörnumerkin: Það villtasta sem þú gerir í rúminu

Stjörnumerkin: Uppáhaldskynlífsathafnir stjörnumerkjanna

PLAY mál Hlyns vakti mikla reiði og umræður

Ein mest lesna frétt ársins snerist um Hlyn Þórisson, sem keypti dýrasta mögulega flugmiða PLAY með forfallatryggingu en lá skömmu síðar alvarlega veikur á gjörgæslu. Þrátt fyrir að fjölskylda hans hefði haft samband við flugfélagið tímanlega og lagt fram læknisvottorð, taldi PLAY bókunina fallna niður og endurgreiddi einungis flugvallargjöld, alls 1.732 krónur. Eftir mikla athygli og umfjöllun Nútímans sneri PLAY við blaðinu og bauð Hlyni að lokum fulla endurgreiðslu.

Hlynur keypti dýrustu tryggingu PLAY – lá á gjörgæslu en fékk aðeins 1.732 króna endurgreiðslu

Eltihrellismál vakti óhug og harða gagnrýni á kerfið

Eitt umtalaðasta og mest lesna mál ársins var umfangsmikið eltihrellismál sem Nútíminn fjallaði um í nokkrum fréttum. Þar stigu fram einstaklingar sem lýstu langvarandi, grófu áreiti af hálfu sömu konu, þar á meðal hótunum, niðrandi skilaboðum, fölskum færslum á samfélagsmiðlum og fleiru. Málið vakti mikla athygli þar sem þolendur sögðu lögreglu ekki hafa gripið inn í þrátt fyrir ítrekaðar kærur og umfangsmikil gögn. Konan hafnaði ásökunum alfarið og steig sjálf fram í viðtali í þættinum Fullorðins þar sem hún sagðist saklaus og þolandi rangfærslna og mannorðsmorðs.

Karlmaður kvartar yfir skelfilegu áreiti frá kvenkyns kennara sem staðið hefur yfir í rúmt ár – Lögregla aðhefst ekkert

Íslenska konan sem sökuð er um gróft áreiti svarar ásökununum

Eltihrellismálið vindur enn upp á sig – Fleiri fórnarlömb stíga fram

Íris Helga segir ásakanir um að hún sé eltihrellir byggðar á ósannindum: „Ég er saklaus“

Ummæli Ólafs Ragnars og gagnrýni á utanríkisstefnu vöktu mikla athygli

Mikil umræða skapaðist í kjölfar færslu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, þar sem hann deildi viðtali CNN við Marco Rubio og dró í efa fullyrðingar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um að um „fyrirsát“ hefði verið að ræða í samskiptum Bandaríkjanna og Úkraínu.

Ólafur Ragnar Grímsson og „fyrirsát“ Þorgerðar Katrínar

Orðaskipti Þorgríms og gagnrýnenda hans vöktu mikla umræðu

Ein mest lesna frétt vetrarins snerist um orðaskipti rithöfundarins Þorgríms Þráinssonar og gagnrýnenda hans, sálfræðingsins Huldu Tölgyes og kynjafræðingsins Þorsteins V. Einarssonar. Þorgrímur hafnaði þeirri hugmynd að aðeins fræðileg menntun veitti rétt til þátttöku í umræðu um börn og ungmenni og lagði áherslu á áratuga reynslu sína af starfi með ungu fólki.

Þorgrímur Þráinsson svarar Karlmennsku-Þorsteini og Huldu fullum hálsi

Gagnrýni á MeToo-framgöngu Ingunnar Agnesar

Mikil umræða skapaðist um gagnrýni Kristins Sigurjónssonar á lögfræðinginn Ingunni Agnesi Kro og framgöngu hennar á tímum MeToo byltingarinnar. Í umfjöllun Nútímans var rakið hvernig Kristinn taldi framgöngu hennar og skrif hafa grafið undan grundvallarreglum réttarríkisins, meðal annars með því að réttlæta brottvikningar og refsingu einstaklinga á grundvelli ósannaðra ásakana.

Ingunn Agnes Kro harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína á tímum MeToo

Magga Stína kallar Stefán Einar „sérlega ógeðfelldan“

Ein  umdeildasta frétti ársins fjallaði um hörð viðbrögð við ummælum Stefáns Einars í Harmageddon, þar sem hann ræddi meðal annars hugmyndir um að flytja Palestínumenn frá Gasa og greiða nágrannaríkjum fyrir að taka við þeim. Ummælin voru tekin fyrir í Rauða Borðinu, þar sem þau voru gagnrýnd harkalega og sögð ómannúðleg, öfgakennd og hluti af hættulegri normalíseringu slíkra sjónarmiða. Magga Stína fór þar fremst í flokki og kallaði Stefán Einar „afskaplega ógeðfelldan mann“.

Harðorð gagnrýni á ummæli Stefáns Einars – „Afskaplega ógeðfelldur maður“

Ungir menn af erlendum uppruna veifa vopnum með stolti

Mikil athygli vakti þegar myndir og myndbönd birtust af ungum mönnum dansandi ofan á bílum og flagga því sem virtust vera hríðskotabyssur og skammbyssur. Efnið dreifðist hratt á samfélagsmiðlum og var sagt hafa verið birt á TikTok áður en hlutar voru klipptir út vegna reglna miðilsins um skotvopn. Lögregla tilkynnti síðar að um sérlega raunverulegar eftirlíkingar hafi verið að ræða.

Ungir menn birta myndir af sér dansandi ofan á bílum – Flagga því sem virðast vera hríðskotabyssur og skammbyssur

TikTok-myndband þar sem fagnað var morði vakti mikinn óhug

Mikil viðbrögð urðu við TikTok-myndbandi þar sem íslenskur einstaklingur setti sig í hlutverk sig sem Charlie Kirk, sem hafði nýlega verið myrtur, og fagnaði dauða hans með háði, gerviblóði og ögrandi athugasemdum.

Íslendingur fagnar morðinu á Charlie Kirk í TikTok myndbandi – Gerviblóð, háð og stuðningskomment

Sérsveitaraðgerð á Raufarhöfn vakti ótta og vangaveltur

Mikil athygli vakti þegar umfangsmikil lögregluaðgerð fór fram á Raufarhöfn og sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út. Að minnsta kosti fjórir lögreglubílar voru á svæðinu og vitni greindu frá því að sérsveitin hefði brotið sér leið inn í hús eftir að lögregla hafði verið þar frá því snemma morguns. Þetta reyndust vera aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi Albana.

Umfangsmiklar lögregluaðgerðir í gangi á Raufarhöfn – Sérsveit kölluð út

Taxý Hönter fjarlægður eftir að benda á meint svindl leigubílstjóra

Mikil umræða skapaðist eftir að Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, var fjarlægður ítrekað af Keflavíkurflugvelli af lögreglu eftir að hafa afhjúpað brot leigubílstjóra gegn farþegum. Friðrik lýsti því hvernig farþegum var neitað um akstur þar sem ferðin þótti of stutt, þrátt fyrir að slíkt brjóti gegn gildandi reglum. Þrátt fyrir vitni og staðfestingar farþega voru engin sýnileg viðbrögð gagnvart bílstjórunum, heldur var athyglin beint að þeim sem vakti máls á brotunum.

Taxý Hönter fjarlægður af Keflavíkurflugvelli eftir að hafa afhjúpað svindl

Skjöldur Íslands vakti umræður

Athygli vakti þegar hópur manna undir heitinu Skjöldur Íslands hóf svokallað „foreldrarölt“ um miðborg Reykjavíkur með það að markmiði að auka öryggi íbúa. Hópurinn sagðist fordæma allt ofbeldi og lýsti sér sem friðsælli hverfisgæslu, en umfjöllunin vakti mikla umræðu þar sem þeir sögðust hafa fengið fjölda tilkynninga, einkum frá konum, um ofbeldi sem ekki hefði verið kært til lögreglu. Óhætt er að segja að samfélagið hafi logað í umræðum um hópinn í kjölfarið.

Hópur manna sem kallar sig ‘Skjöld Íslands’ gengur um borgina og passar upp á íbúa

Tálbeituhópar ungmenna gegn meintum barnaníðingum 

Ein umdeildasta, en jafnframt mest lesna frétt ársins fjallaði um íslensk ungmenni sem beittu tálbeituaðferðum á samfélagsmiðlum til að lokka menn sem þeir töldu vera að leita eftir börnum og beittu þá líkamlegu ofbeldi, sem síðan var birt á netinu. Nútíminn opnaði á umræðuna sem fór eins og eldur í sinu um samfélagið. Umfjöllunin vakti mikla athygli þar sem málið snerti bæði alvarleg kynferðisbrot gegn börnum og jafnframt hættuna sem felst í að taka réttlætið í eigin hendur.

Íslensk ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum og birta á samfélagsmiðlum

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing