Mikil óánægja vegna samloku á 1.850 krónum á Olís – „Það er bannað að auglýsa eitt og afhenda annað“

Umræða hefur blossað upp á Facebook hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi eftir að notandi birti mynd af samloku sem hann keypti á Grill 66 á Olís við Suðurlandsveg.

Samlokan, sem nefnist „Joplin“, kostaði 1.850 krónur.

Auglýsing

„Var svangur og kom við á Grill66 á Olís Suðurlandsvegi og leist vel á myndina af vel útilátinni ‘Joplin’ samloku þó hún kostaði 1.850 krónur, en var svangur. Get ekki sagt að ég hafi verið sáttur með verðið eftir að bera gripinn augum. Er ennþá svangur og nú 1.850 krónur fátækari,“ skrifar notandinn.

Samlokan sem um ræðir er fremur fátækleg að sjá og virtust virkir í athugasemdum vera sammála því.

„Það er bannað að auglýsa eitt og afhenda annað“

Fjöldi notenda tók þátt í umræðunni og voru flestir sammála um að verðið væri úr hófi fram.
„Það er alstaðar samdráttur en þetta er einum of lélegt,“ skrifaði Magnús Skarphéðinsson, og Katrín Þorsteinsdóttir bætti við: „Okurverð.“

„Samloka með skinku, osti, káli og sósu? Á næstum 2000 kall,“ sagði Elsa Björk Einarsdóttir, en Jósa Þorbjarnardóttir tók undir: „Kostaði ein samloka nærri 2 þúsund? Holy moly.“

Fleiri bentu á gæði og útlit vörunnar.

„Hráefni í 10 svona samlokur kostar tæpar 3.000 krónur í Krónunni,“ skrifaði Unnar Örn Valgeirsson, en Hjördís Vilhjálmsdóttir hélt því fram að um vörusvik gæti verið að ræða:
„Samlokan er augljóslega vörusvik, skinkan á mynd nær út fyrir brauðið, einnig þykkari. Það er bannað að auglýsa eitt en afhenda annað.“

Þér er refsað fyrir að kaupa ruslfæði“

Ekki voru þó allir sammála gagnrýninni.

„Þér er refsað fyrir að versla ruslfæði,“ skrifaði Stefán Sigfinnsson.

„Þetta er verð með frönskum og gosi. Af hverju tekur þú það ekki fram?“ spurði Óskar Haraldsson.

„Það er gott, ekki hægt að væla yfir mat á bensínstöð,“ skrifaði Halli Örn.

„Matur og húsnæði alltaf að hækka“

Margir nýttu umræðuna til að tjá sig um hækkandi matvælaverð almennt.

„Já, 1.850 krónur fyrir sneið af kjöti, brauð, sósu og salat er ekki góð kjör. Fúlt hvað vísindin gátu ekki gert betra fyrir láglaunafólk, því matur og húsnæði er bara alltaf að hækka með hækkandi sköttum,“ skrifaði einn.

Sumir sáu spaugilegu hliðina

„Ég skal búa til tíu svona samlokur handa þér á einungis 18.500 kall,“ sagði Geir Helgi Birgisson, og Hjalti Már Svavarsson, búsettur erlendis, greip tækifærið til að skella í hrós þar sem virtist votta fyrir kaldhæðni:
„Ég verð að viðurkenna að ég fæ svakalega heimþrá þegar ég sé svona lostæti á svona sanngjörnu verði.“

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing