Nútíminn fékk ábendingu um að tónleikahúsinu Hörpu hefði borist fjöldi áskorana um að aflýsa fyrirlestri kanadíska prófessorsins Gad Saad sem stendur til að halda í húsinu þann 2. júní næstkomandi.
Nútíminn hafði samband við skipuleggjendur viðburðarins sem staðfestu að reynt hafi verið að þrýsta á Hörpu til að hætta við viðburðinn.
Stjórnendur Hörpu segjast ekki ætla að aflýsa fyrirlestrinum en að þeim hafi borist „mikil mótmæli.“
Ábendingar og þrýstingur vegna fyrirlesarans
„Viðburðurinn hefur verið harðlega gagnrýndur og við höfum fengið ábendingar um að Dr. Gad Saad tali gegn mannréttindum og minnihlutahópum og stundi hatursorðræðu,“ var meðal þess sem kom fram í tölvupóstinum sem skipuleggjendum barst frá Hörpu.
Gunnlaugur Jónsson er einn þeirra sem stendur fyrir viðburðinum en hann segir stjórnendur hússins hafa lýst áhyggjum af umræddum mótmælum og viðrað hugmyndir um að auka öryggisgæslu á viðburðinum vegna yfirvofandi hættu á ófriði. Gunnlaugur segist ekki trúa að til þess þurfi að koma enda Gad Saad með eindæmum friðsæll maður sem leggi mikla áherslu á mannréttindi og vestræn gildi (hafandi sjálfur flúið borgarastyrjöld í Líbanon til Kanada þegar hann var ungur).
Þá hafi verið óskað eftir samtali við skipuleggjendur til að fá frekari upplýsingar um fyrirlesarann og hvort hann hafi nýverið komið fram á sambærilegum vettvangi og Hörpu.
„Við eigum að sanna sakleysi gegn einhverju sem við fáum ekki að sjá“
Gunnlaugi er eðlilega brugðið vegna málsins en hann bendir á að Dr. Gad Saad hafi sagt honum að hann hafi aldrei á ferli sínum mætt þeim aðferðum sem róttækir aktívistar á Íslandi virðast nú beita vegna þessa tiltekna fyrirlestrar.
„Við upplifðum þetta þannig að við þyrftum nú að sanna sakleysi gegn einhverju sem var ekki einu sinni skýrt, við fengum ekki að vita hvernig ásakanirnar voru orðaðar eða hvaða ummæli Saad á að hafa gerst sekur um að viðhafa.“
„Ef það kemur fram ásökun um glæp, þá verður hún að vera afmörkuð. Þú getur ekki sagt bara ‘þú ert glæpamaður, sannaðu sakleysi þitt. Á ég að hafa verið með myndavél á mér alla ævi? Það er ekki hægt. Við verðum að fá að vita nákvæmlega hvað er talið rangt, annars er þetta bara pólitískur þrýstingur,“ segir Gunnlaugur.
Harpa óskar eftir frekari upplýsingum um Saad
Í póstinum frá Hörpu var tekið skýrt fram að húsið væri „vettvangur fyrir fjölbreytta starfsemi á sviði menningar, lista og ráðstefna“ og að ekki væri beitt ritskoðun „svo lengi sem viðburðir brjóta ekki gegn lögum um hatursorðræðu eða aðra refsiverða háttsemi.“
Þá var einnig vísað til þess að Harpa væri „hús þjóðarinnar“ og að því fylgdi að ákveðnir viðburðir gætu kallað fram viðbrögð sem stjórnendur hússins þyrftu að taka afstöðu til.
Skipuleggjendur sendu ítarlegt efni um Saad
Til að bregðast við beiðni Hörpu sendu skipuleggjendur yfirgripsmiklar upplýsingar um Dr. Gad Saad og hans farsæla feril. Þar á meðal var:
• 70 blaðsíðna ferilskrá
• Fjöldi myndefnis og fyrirlestra frá Stanford og öðrum virtum háskólum
• Upplýsingar um fræðilega stöðu hans og störf
„Við tókum þetta mjög alvarlega og sendum allt sem hægt var til að sýna fram á að hér væri um virðulegan fræðimann að ræða,“ segir Gunnlaugur.
Hann bætir við að Saad hafi í gegnum tíðina átt í virku samtali við alþjóðlega fræðimenn og stofnanir.
„Þetta er ekki einhver YouTube popúlisti heldur fræðimaður sem hefur rannsakað markaðssálfræði, þróunarsálfræði og áhrif hormóna á kauphegðun. Þetta er engin nethetja heldur vísindamaður.“
Hrósar forráðamönnum Hörpu
Þrátt fyrir þetta allt saman er Gunnlaugur bjartsýnn á að stjórnendur Hörpu munu ekki láta undan þeim þrýstingi sem hinir róttæku aðgerðarsinnar vilja setja á tónleikahús þjóðarinnar. „Ég vil hrósa Hörpu fyrir að láta ekki undan þrýstingnum. Við upplifðum ákveðna óvissu fyrst, en síðan kom skýrt fram að þau ætluðu ekki að slaufa viðburðinum eða hætta við að svo stöddu.“
Hann segir þó augljóst að um sé að ræða skipulagðar tilraunir til að stöðva viðburðinn. „Það er greinilegt að einhverjir eru að reyna að kansela þessu. En Harpa virðist ekki ætla að taka þátt í því.“