Íslenska svartmálmssveitin Misþyrming og Adam „Nergal“ Darski, forsprakki pólsku öfgamálmsrisanna Behemoth, hafa í sumar sameinað krafta sína í einstöku tónlistarverkefni undir yfirskriftinni Sventevith.
Verkefnið var sett á laggirnar í tilefni af 30 ára afmæli fyrstu breiðskífu Behemoth, Sventevith – Storming Near the Baltic, sem kom út árið 1995. Sveitin steig þar sín fyrstu skref en hefur síðan vaxið í að verða ein stærsta og áhrifamesta öfgamálmshljómsveit heims.

Nergal, söngvari, gítarleikari og aðallagasmiður Behemoth, er eini meðlimur sveitarinnar sem hefur fylgt henni frá stofnun árið 1991. Hann er í dag ein þekktasta persóna alþjóðlega þungarokksheimsins og hefur leitt Behemoth í gegnum áratugi af plötuútgáfu og umfangsmiklu tónleikahaldi um allan heim.
Misþyrming leiðandi afl í íslensku öfgarokki
Misþyrming hefur á undanförnum tólf árum skipað sér í fremstu röð íslenskra öfgamálmssveita. Fyrsta plata hennar, Söngvar elds og óreiðu, kom út árið 2015 og vakti þegar mikla athygli langt út fyrir landsteinana.
Sveitin hefur síðan leikið víða um heim og sent frá sér þrjár breiðskífur sem allar hafa hlotið mikið lof innlendra og erlendra gagnrýnenda.

Sventevith-verkefnið var frumflutt á Sátunni í Stykkishólmi í júní síðastliðnum og fékk góðar viðtökur tónleikagesta.
Flosi Þorgeirsson, gítarleikari HAM, var á meðal þeirra sem létu vel af tónleikunum.
„Ég átti von á góðu er ég heyrði af samstarfi Nergal og Misþyrmingar. Ég varð alls ekki vonsvikinn. Þetta var góður nostalgíufnykur,“ skrifaði Flosi á Facebook.
Lék á Wacken og öðrum stórhátíðum
Eftir frumflutninginn á Íslandi hafa Nergal og liðsmenn Misþyrmingar ferðast á milli nokkurra stærstu þungarokkshátíða Evrópu.
Þeir hafa meðal annars flutt plötuna á Wacken Open Air í Þýskalandi, Beyond the Gates í Noregi, Brutal Assault í Tékklandi, Alcatraz í Belgíu og Rockstadt Extreme Fest í Rúmeníu.
Lokahnykkurinn verður í byrjun september þegar Sventevith verður flutt á Summer Dying Loud í Póllandi og Prophecy Festival í Þýskalandi. Að þeim tónleikum loknum verður þessu sérstaka afmælisverkefni lokið.
Hægt er að horfa á tónleika verkefnisins á Wacken í heild sinni á vef Magenta Musik.
Myndirnar með fréttinni voru teknar á Brutal Assault-hátíðinni í Tékklandi í ágúst. Ljósmyndari: Piotr Rynk – Blood Libels.