Móðir Elísabetar arfleiddi Stígamót að 5 milljónum með skilyrðum – segir samtökin ekki vilja upplýsa í hvað fjármunirnir fóru

Elísabet Sigurðardóttir hefur óskað eftir formlegri sundurliðun og staðfestingu á ráðstöfun 5.000.000 króna arfs sem móðir hennar, Guðbjörg Sigurðardóttir, gaf til Stígamóta árið 2010. Hún segir markmiðið vera að fá upplýsingar um hvernig framlagið var fært til bókhalds og nýtt í starfsemi félagsins.

Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta frá 2010 barst félaginu arfur að upphæð fimm milljónir króna frá Guðbjörgu. Þar kom fram að um væri að ræða rausnarlegustu gjöf frá einstaklingi sem félagið hefði fengið fram að því og að fjármunirnir skyldu nýtast til að endurvekja starf úti á landi, opna vændisathvarf og auka fjölbreytni í hjálparstarfi.

Auglýsing

Í sömu umfjöllun var tekið fram að arfurinn hefði borist á sama tíma og fjárframlög til Stígamóta hefðu verið skorin niður um sex milljónir króna í fjárlögum.

Óskar eftir staðfestingu og rekjanleika

Elísabet hefur sent stjórn Stígamóta formlega beiðni þar sem hún fer fram á að fá afhent bókhaldsgögn sem varða móttöku og meðferð arfsins. Þar á meðal óskar hún eftir staðfestingu á móttöku fjárhæðarinnar árið 2010, til dæmis með bankayfirliti eða innheimtuskjölum. Sundurliðun bókhaldsfærslna frá 2010 til dagsins í dag sem sýni hvernig arfurinn var færður í bókhald félagsins og til hvaða verkefna honum var ráðstafað. Afrit af ársreikningum sem sýni meðferð framlagsins.

Einnig segist hún hafa sett sig í samband við Drífu Snædal, upplýsingafulltrúa, en ekki haft erindi sem erfiði. Hún segist hafa átt í samskiptum við Drífu í rúmt ár í von um að fá svör um hvað varð um arfinn en segir að Drífa hafi alltaf vikið sér undan spurningunni og byrjað að víkja umræðuefninu að því hvað móðir hennar var einstök kona og boðið Elísabetu að koma og skoða hversu „allt er orðið huggulegt og fínt hjá þeim hjá Stígamótum“ en Elísabet hafi ekki þegið það boð og segist ekki munu gera það fyrr en hún hefur fengið að sjá hvernig fé móður hennar var nýtt.

Elísabet segir beiðnina snúa að gegnsæi og eðlilegri bókhaldsskyldu. Hún leggi ekki fram neinar ásakanir að svo stöddu heldur óski einfaldlega eftir upplýsingum sem staðfesti hvernig arfur móður hennar hafi verið nýttur í samræmi við það sem fram kom í opinberri umfjöllun á sínum tíma.

Vantar skýra sundurliðun í opinberum gögnum

Samkvæmt samantekt sem Elísabet hefur tekið saman kemur arfurinn fram í ársskýrslu Stígamóta árið 2010, en hún segist ekki hafa fundið sundurliðaðar upplýsingar í opinberum gögnum um hvernig fjárhæðinni var ráðstafað á næstu árum. Hún bendir á að ársreikningar kunni að liggja hjá Ársreikningaskrá, en að ekki sé að finna svör í aðgengilegum skýrslum félagsins.

Guðbjörg Sigurðardóttir var fædd 5. ágúst 1932 og lést 14. september 2010. Í minningarorðum og umfjöllun um arfinn kom fram að framlag hennar ætti að styrkja og efla starfsemi Stígamóta á landsbyggðinni.

Elísabet segir mikilvægt að fá skýrar upplýsingar um hvernig þeim markmiðum hafi verið fylgt eftir og að hún vonist til að fá svör innan tilgreinds frests.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing