Sam Large, móðir hinnar 18 ára gömlu Hönnuh Jane Large sem lést í slysinu hörmulega á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags, segir dóttur sína hafa orðið ástfangna af Íslandi og að síðustu dagar hennar hafi verið þeir hamingjusömustu í lífi hennar.
Fjölskyldan hafði rætt við Hönnuh sama kvöld og slysið varð. Hún var þá uppfull af gleði, segir Sam, og sú vitneskja sé eina huggun fjölskyldunnar í sorginni.
Þakkaði forsetanum fyrir kveðjuna
Halla Tómasdóttir forseti Íslands birti kveðju eftir slysið og vottaði fjölskyldum og vinum ungmennanna samúð sína. Sam svaraði færslunni og þakkaði fyrir sýndan samhug.
„Dóttir mín, Hannah frá Írlandi, var eitt fórnarlambanna í þessum harmleik. Hún varð ástfangin af landinu ykkar, hún elskaði fólkið og síðustu dagar hennar voru þeir hamingjusömustu í lífi hennar,“ skrifaði hún.
„Það er eina huggunin sem við höfum og höldum í. Við töluðum við hana þetta kvöld og hún var uppfull af gleði.“
Þrjú ungmenni létust
Hannah var frá Greystones í Wicklow sýslu á Írlandi og hafði nýlokið síðasta ári sínu í St David’s Holy Faith Secondary School.
Hún var ein þriggja ungmenna sem létust þegar bíll þeirra fór út af Krýsuvíkurvegi skömmu eftir miðnætti mánudaginn 31. ágúst. Tvö íslensk ungmenni, 21 árs piltur og 16 ára stúlka, létust einnig í slysinu.
Minningar- og bænastundir voru haldnar í Lágafellskirkju og Háteigskirkju á miðvikudag vegna ungmennanna þriggja.