Móðir og 15 ára dóttir hennar drukknuðu í sjónum – Hetjan sem reyndi að bjarga þeim drukknaði einnig

Móðir og unglingsdóttir hennar drukknuðu í sjónum við strandbæinn Withernsea í Yorkshire.

Einnig var greint frá því að maður sem reyndi hetjulega að bjarga þeim lést einnig.

Auglýsing

Grace Keeling, 15 ára, var að fylgjast með öldugangi ásamt móður sinni, Sarah Keeling, 45 ára, síðdegis á föstudag þegar stór alda hrifsaði hana út í sjó.

Móðirin hljóp til og björgunarmaður bættist í hópinn

Sarah Keeling óð út í sjóinn í örvæntingarfullri tilraun til að ná til dóttur sinnar.

Mark Ratcliffe, 67 ára vegfarandi sem átti leið hjá, reyndi að aðstoða við björgunina.

Aðstæður voru afar erfiðar á svæðinu, mikill öldugangur og sjórinn kaldur.

Lík tveggja fundust, leit að stúlkunni heldur áfram

Lík móðurinnar og Ratcliffe voru dregin upp úr sjónum síðar um kvöldið.

Leitin að Grace stendur enn yfir, en hún hefur reynst erfið vegna veðurs, snjókomu og kulda.

„Sönn, óeigingjörn hetja“

Aðstandendur Mark Ratcliffe lýstu honum sem sannri og óeigingjarnri hetju sem fórnaði lífi sínu við að reyna að bjarga öðrum.

Í yfirlýsingu sögðu þau að fjölskyldan syrgði ástkæran eiginmnn, föður, bróður og afa.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing