Fjórum árum eftir að Alban Gervais, þriggja barna faðir, var stunginn til bana fyrir utan skóla barna sinna fær maðurinn sem réðst á hann nú að dvelja heima á kvöldin og um helgar. Ekkja Albans segir ákvörðunina hafa vakið mikinn ótta hjá fjölskyldunni og óttast að hann ráðist aftur til atlögu.
Morðinginn, Mohamed L. hefur þó ekki verið látinn laus að fullu. Hann sækir dagdeild geðsjúkrahúss frá mánudegi til föstudags, tekur lyf og er áfram í meðferðinni sem dómstólar dæmdu hann til að sækja. Á kvöldin og um helgar má hann hins vegar dvelja á heimili foreldra sinna.
Christelle Gervaise, ekkja Albans, segir ákvörðunina hafa vakið mikinn ótta og reiði hjá fjölskyldunni.
„Maður fær á tilfinninguna að líf Albans sé einskis virði,“ sagði hún þegar ákvörðunin var kynnt.
Dóttir hans sat í aftursætinu
Árásin átti sér stað í Marseille 10. maí 2022. Alban, sem var fertugur herlæknir og þriggja barna faðir, beið eftir þriggja og sjö ára sonum sínum fyrir utan kaþólskan skóla.
Ung dóttir hans sat í barnabílstól í aftursætinu þegar Mohamed réðst að honum inni í bifreiðinni, algerlega að tilefnislausu.
Alban tókst að komast út en árásarmaðurinn elti hann, fellt hann og stakk hann meðal annars í hjartað. Hann hlaut um tíu stungusár og lést eftir 17 daga á gjörgæslu.
Vegfarendur yfirbuguðu Mohamed og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang. Samkvæmt vitnum hrópaði hann meðal annars að hann hefði framið verknaðinn í nafni Allah.
Var aldrei dæmdur fyrir morðið
Mohamed var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald en fluttur á geðsjúkrahús þremur mánuðum síðar. Fangavist hans hafði þá einkennst af alvarlegum atvikum og árásum á fangaverði.
Þrír hópar geðlækna komust að þeirri niðurstöðu að Mohamed hefði verið í geðrofi þegar árásin var framin.
Hann hafði neytt kannabisefna og reyndist með THC í blóðinu eftir árásina. Sérfræðingarnir töldu neysluna hafa gert geðrofseinkennin verri en ekki verið upphafleg orsök þeirra.
Áfrýjunardómstóll úrskurðaði Mohamed ósakhæfan í júní 2025. Hann fór því aldrei fyrir kviðdóm, var ekki sakfelldur og hlaut enga fangelsisrefsingu fyrir að hafa orðið Alban að bana. Þess í stað var honum gert að sæta ótímabundinni vistun á lokuðu geðsjúkrahúsi.
Ekkjan segir meðferðareftirlitið ekki veita fjölskyldunni nægilegt öryggi. Mohamed ber hvorki rafrænt ökklaband né þarf að tilkynna sig til lögreglu.
„Hvernig finnst hann ef hann mætir ekki í meðferð einn morguninn? Hvernig getum við tryggt að hann geri þetta ekki aftur?“ spurði hún.