Morðið á Charlie Kirk: Grunaður morðingi í sambandi með transkonu og ólík viðbrögð við dauða hans

Morðið á Charlie Kirk, stofnanda íhaldssamtakanna Turning Point USA hefur sannarlega vakið athygli víða um heim.

Kirk var skotinn til bana meðan hann svaraði spurningu frá áhorfanda á viðburði í Utah Valley University á miðvikudag.

Auglýsing

Talið er að árásin hafi verið fyrirfram skipulögð.

Maðurinn sem grunaður er um árásina er Tyler Robinson (22 ára), hleypti af skoti úr fjarska og flúði af vettvangi.

Hann var síðar handtekinn eftir að fjölskylda hans hvatti hann til að gefa sig fram.

Saksóknarar hafa gefið út að þeir muni krefjast dauðarefsingar yfir Robinson.

Pólitískur hvati?

Rannsókn beinist nú að mögulegum hvötum á bak við árásina.

Robinson bjó með og var í sambandi við Lance Twiggs, transkonu í kynleiðréttingarferli.

Yfirvöld hafa staðfest að sambandið sé til skoðunar sem hugsanlegur þáttur í hvata árásarinnar.

Kirk hafði áður gagnrýnt meðferðir svokallaðra transbarna harðlega, bæði í ræðum sínum og á samfélagsmiðlum.

Yfirvöld staðfestu einnig að skothylki á vettvangi hafi borið ýmsar áletranir, þar á meðal „Hey Fascists! Catch“, texta úr söngvum öfga vinstri manna sem kalla sig and-fasista og meme sem tengist transfólki.

Yfirvöld segja að enginn vafi leiki á að árásin var pólitísks eðlis.

Kaldhæðnisleg samskipti eftir morðið

Skömmu eftir árásina tók Robinson þátt í einkaspjalli á Discord þar sem hann hæddist að rannsókninni, gerði lítið úr málinu og grínaðist með að hann væri sjálfur Charlie Kirk sem hefði „falsað eigin dauða til að byrja nýtt líf í Kansas“.

Samkvæmt skjáskotum sem fjölmiðlar hafa undir höndum sýndi Robinson enga iðrun og virtist fylgjast með umfjöllun um málið í rauntíma á meðan hann gantaðist við aðra spjallfélaga sína.

Viðbrögð úr öllum áttum – frá háðsádeilu til sorgar

Viðbrögðin við morðinu hafa verið afar tvíræð. Sumir áhrifamenn og tónlistarfólk hafa nýtt tækifærið til að fagna dauða Kirks opinberlega.

Á tónleikum í Amsterdam hrópaði forsprakki bresku punk-rappsveitarinnar Bob Vylan:
„Rest in piss Charlie Kirk, you piece of s**“*, og bætti við: „The pronouns was/were.“

Bandaríska utanríkisráðuneytið afturkallaði vegabréfsáritanir hljómsveitarinnar eftir að hún kallaði eftir dauða ísraelskra hermanna á Glastonbury fyrr í sumar.

Bandaríska ríkið afturkallar vegabréfsáritanir Bob Vylan eftir umdeilt Glastonbury-atriði

Á sama tíma og í allt öðrum tón, stöðvaði söngvari Coldplay, Chris Martin tónleika sína á Wembley og bað 80 þúsund áhorfendur að „senda ást og kærleik“ til þeirra sem hefðu orðið fyrir sorg og missi, þar á meðal fjölskyldu Charlie Kirk.

„Þó við séum ósammála fólki, getum við samt sent þeim ást og kærleika,“ sagði hann.

Sumir lýstu virðingu fyrir þeirri afstöðu, aðrir fordæmdu hana harðlega á samfélagsmiðlum.

Oxford háskóli: Forseti í erfiðri stöðu eftir umdeild skilaboð

Í Oxford háskóla hefur hinn 20 ára George Abaraonye, verðandi forseti Oxford Union, orðið miðpunktur hneykslismáls eftir að hann fagnaði morðinu í einkaskilaboðum og skrifaði „Charlie Kirk got shot loool“ á Instagram.

Hann hefur beðist afsökunar en þess er nú krafist að hann segi af sér.

Oxford Union hefur vísað málinu í aganefnd en staðfest að ekki sé hægt að vísa forseta frá með einföldum hætti.

Þingmenn í Bretlandi hafa kallað eftir því að hann stígi til hliðar og bent á að fagna pólitísku morði sé algerlega óviðeigandi þegar um er að ræða forystu í virtasta umræðufélagi landsins.

Ekkja hans lýsir honum sem „píslarvotti“

Eiginkona Kirks, Erika Kirk, kom með opinbera yfirlýsingu þar sem hún hét því að halda arfleifð hans á lofti.
„Charlie mun standa við hlið frelsara síns, með píslarvottakórónu á höfði,“ sagði hún og bætti við:
„Þeir hafa ekki hugmynd um hvað þeir vöktu til lífsins með því að taka hann frá okkur.“

Morðið sem opinberaði tvær þjóðir í einu landi

Dauði Charlie Kirk hefur ekki einungis orðið til þess að ýta undir pólitíska umræðu um ofbeldi og tjáningarfrelsi, heldur opinberað dýpri og ljótari klofning í samfélaginu.

Sumir syrgja mann sem þeir líta á sem trúfastan leiðtoga og fjölskylduföður, en aðrir lýsa yfir fögnuði og líta á dauða hans sem réttlæti.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing