Þrír létust og 14 særðust þegar vopnaður maður hóf skothríð fyrir utan skemmtistað í Austin í Texas í Bandaríkjunum snemma á sunnudagsmorgun. Lögregla skaut árásarmanninn til bana á vettvangi.
Skotárásin átti sér stað rétt fyrir klukkan tvö að staðartíma fyrir utan bar í miðborg Austin. Að sögn yfirvalda var staðurinn troðfullur af fólki þegar árásin hófst.
Skaut frá götunni með tveimur vopnum
Lögreglustjórinn í Austin sagði á blaðamannafundi að árásarmaðurinn hefði ekki farið inn á barinn heldur skotið að gestum frá götunni. Hann var vopnaður bæði skammbyssu og riffli.
Alls voru 17 manns skotnir. Þrír voru úrskurðaðir látnir á vettvangi og 14 fluttir á sjúkrahús. Þrír þeirra eru í lífshættu.
Davis hrósaði viðbragðsaðilum fyrir skjót og ákveðin viðbrögð. Sjúkraflutningamenn komu á vettvang innan við mínútu frá því að skothríð hófst og er sagt að það hafi orðið nokkrum til lífs.
Grunur um hryðjuverk
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, staðfesti að verið sé að rannsaka málið sem hryðjuverk. Embættismenn sögðu að gögn sem fundust í fórum árásarmannsins bentu til tengsla við hryðjuverkastarfsemi.
Samkvæmt bandarískum miðlum hét árásarmaðurinn Ndiaga Diagne, 53 ára bandarískur ríkisborgari, upprunalega frá Senegal og íbúi í New York. Í bifreið hans fannst Kóran og hann var klæddur peysu sem á stóð ‚Property of Allah‘. Þá hafa komið fram upplýsingar um að hann kunni að hafa haft tengsl við Íran.
Rannsakendur skoða nú hvort árásin kunni að tengjast nýlegum loftárásum Bandaríkjanna á Íran. Írönsk stjórnvöld hafa heitið hefndum eftir árásirnar, þar sem meðal annars var greint frá dauða æðsta leiðtoga landsins.