Mótmælaganga í Hollandi eftir að hælisleitandi myrti 17 ára stúlku á hrottalegan hátt

Þúsundir hafa látið í ljós reiði sína og sorg í Hollandi eftir að 17 ára stúlka, Lisa, var stungin til bana er hún var á leið heim á hjóli frá kvöldskemmtun þegar hún tók eftir manni á hjóli sem elti hana.

Hún hringdi í neyðarnúmerið 112, en áður en lögregla kom á vettvang heyrðu starfsmenn neyðarlínunnar þegar var hún stungin margoft.

Auglýsing

Hún fannst látin í skurði við Holterbergweg nálægt Johan Cruijff Arena í Duivendrecht.

Handtekinn í tvígang – sleppt í bæði skiptin

Helsti grunaði í málinu er 22 ára hælisleitandi sem hafði verið handtekinn vegna tveggja kynferðisbrota aðeins nokkrum dögum fyrir morðið.

Hann var handtekinn 10. ágúst grunaður um kynferðislega áreitni og aftur 15. ágúst vegna gruns um nauðgun í Amsterdam.

Í bæði skiptin var honum sleppt úr haldi, aðeins nokkrum dögum áður en Lisa var myrt.

Þetta hefur vakið mikla reiði meðal almennings sem spyr hvernig slíkt getur gerst.

Mótmæli gegn ofbeldi

Um 500 manns tóku þátt í mótmælagöngu í Rotterdam á sunnudag.

Þar voru skilti með slagorðunum „She had dreams, no grave needed“ og „Not all men, but always men“.

Göngunni var ætlað að vekja athygli á kvennamorðum og krefjast aðgerða stjórnvalda til að vernda konur.

Fjöldi blóma hefur verið lagður við kirkju í heimabæ Lisu, og á leik Ajax í gær stóðu áhorfendur á fætur og var mínútu þögn á vellinum til minningar um hana.

Pólitísk viðbrögð

Málið hefur einnig vakið hörð pólitísk viðbrögð.

Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins (PVV), krefst þess að landinu verði lokað og engum hælisleitendum hleypt inn.

Mál mannsins verður tekinðfyrir hjá dómara síðar í dag.

Lisa hafði nýlokið námi í menntaskóla í Amsterdam og fjölskylda hennar segir sorgina svo mikla að ekki sé hægt að lýsa henni með orðum.

Fjölskyldan óskaði þess jafnframt að fjölmiðlar gefi þeim næði á þessum erfiðu tímum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing