Mótmælendur í Íran kalla „drepum einræðisherrann“ – Búið að kveikja í byggingu ríkissjónvarps landsins og mótmælin stækka áfram

Mótmæli hafa breiðst hratt út um Íran þar sem reiðir mótmælendur hafa hrópað slagorð gegn stjórnvöldum og kveikt í byggingu ríkisútvarpsins.

Ólgan tengist versnandi efnahagsástandi, hruni gjaldmiðilsins og vaxandi verðbólgu.

Auglýsing

Mótmæli í helstu borgum landsins

Vitni segja að fjöldi fólks hafi safnast saman í höfuðborginni Teheran sem og í borgunum Mashhad og Isfahan.

Þar hafi heyrst hróp á borð við „drepum einræðisherrann“, en þar er verið að meina æðsta leiðtoga landsins, Ali Khamenei.

Bygging ríkissjónvarpsins í ljósum logum

Myndbönd sem gengið hafa á samfélagsmiðlum sýna byggingu sem talin er tilheyra Islamic Republic of Iran Broadcasting í ljósum logum.

Á upptökum má einnig sjá mótmælendur rífa niður fána íslamska lýðveldisins.

Ríkismiðlar í Íran halda þó því fram að ástandið sé rólegt víða um land og draga úr umfangi óeirðanna.

Tugir látnir og þúsundir handteknir

Samkvæmt Mannréttindafréttastofu aðgerðarsinna hafa að minnsta kosti 36 manns látist og um 2.076 verið handteknir síðan mótmælin hófust í síðasta mánuði.

Nútíminn hefur áður fjallað um mótmælin en þau hafa stóraukist síðan þá.

Mótmæli blossuðu upp víða um Íran eftir yfirlýsingar forseta um „allsherjarstríð við Bandaríkin“

Reza Pahlavi, sonur síðasta leiðtoga Írans sem steypt var af stóli árið 1979, hefur hvatt Írana til að halda áfram mótmælum.

Í færslu á samfélagsmiðlum sagði hann að augu heimsins hvíldu á írönsku þjóðinni og hvatti hana til að sameinast.

Hann varaði jafnframt stjórnvöld og byltingarvarðlið landsins við og sagði að alþjóðasamfélagið, þar á meðal Donald Trump, fylgdist grannt með framvindu mála og að þjóðin neitaði að láta kúga sig lengur.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing