Mótmælendur réðust inn í Trump Tower – krefjast lausnar palestínsks aðgerðasinna

Um 200 mótmælendur réðust á fimmtudag inn í Trump Tower í miðborg Manhattan og kröfðust lausnar Makmoud Khalil, palestínsks aktívista og meistaranema við Columbia-háskóla, sem var nýverið handtekinn af bandarískum innflytjendayfirvöldum (ICE).

Þeir mættu með mótmælaskilti og trommur og byrjuðu með skrílslæti þegar þeir voru komnir inn í húsnæðið.

Auglýsing

Lögregla bar mótmælendur út, og um 100 voru handteknir.

Mikið gert ú handtöku mannsins

Fjölmiðlar hafa gert mikið úr handtöku Khalil og sagt að erlendir nemendur í Bandaríkjunum séu fullir efa og ótta vegna þessa.

Það er þó eitt sem sjaldnast er minnst á með Khalil og það er að hann hefur skipulagt og verið í farabroddi í sumum af ofbeldisfyllstu mótmælum seinustu ára í Bandaríkjunum.

93 handteknir þegar aukin harka færist í mótmæli Bandarískra stúdenta við háskólana þar í landi

Khalil hefur löglegt dvalarleyfi í Bandaríkjunum og hefur verið í fararbroddi mótmæla gegn stuðningi Bandaríkjanna við Ísrael.

Hann hefur verið tengdur stórum aðgerðum á mörgum háskólasvæðum, þar á meðal hertöku bygginga við Columbia, New School og NYU.

Hann hefur jafnframt starfað fyrir Sameinuðu þjóðirnar og bresk stjórnvöld.

Stjórnvöld hafa lýst því yfir að vísa megi úr landi þeim útlendingum sem hvetja til haturs gegn Bandaríkjunum og stuðla að óeirðum eða öðrum ólöglegum aðgerðum í landinu.

Bandarískur háskóli hefur áhyggjur af öryggi gyðinga sem stunda nám við skólann. Allt nám sett í fjarkennslu tímabundið.

Ógn talin af Khalil

Innanríkisráðherra, Marco Rubio, hefur fullyrt að Khalil sé „þjóðaröryggisógn“, þó ekki hafi verið birt opinber sönnunargögn um meint tengsl hans við hryðjuverkasamtök.

Stjórnendur Columbia háskóla hafa á sama tíma tilkynnt brottvísun og tímabundinn brottrekstur nemenda sem tóku þátt í hertöku háskólabygginga á svæði skólans síðasta vor.

Þá hafa alríkisyfirvöld hafið húsleitir í heimavistum fleiri nemenda.

Stjórnvöld líta því svo á að Khalil hafi farið langt út fyrir þann ramma sem tjáningarfrelsi nær yfir og staðið að fjölda ólöglegra aðgerða í landinu þar sem fólk hefur slasast alvarlega, valdið alvarlegum truflunum á skólastarfi og mikið eignatjón átt sér stað.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing