Mótmæli brutust út í nokkrum helstu borgum Íran daginn eftir að forseti landsins, Masoud Pezeshkian, lýsti því yfir að ríkið væri í nú í allsherjar stríði við Bandaríkin.
Á sama tíma féll íranski gjaldmiðillinn, riali, í sögulegt lágmark gagnvart bandaríska dollaranum, sem kveikti óánægju meðal viðskiptamanna og verslunareigenda.
Ummælin féllu laugardaginn 27. desember, skömmu áður en forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, átti fund með forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, í Washington.
Samkvæmt fréttum frá Associated Press sagði Pezeshkian að Bandaríkin, Ísrael og Evrópa vildu ekki að stöðugleiki ríkti í Íran og varaði við afdrifaríkum viðbrögðum.
Gjaldmiðilshrunið kveikti mótmælin
Mótmælin hófust í kjölfar þess að rialinn féll hratt í verði.
Gengi hans hefur farið úr um 430 þúsundum riala á dollar þegar seðlabankastjóri tók við embætti árið 2022 í um 1,38 milljónir riala á dollar í þessari viku.
Þessi þróun hefur stórminnkað kaupmátt almennings, þar sem verð á matvælum, lyfjum og nauðsynjavörum hefur hækkað verulega.
Verðbólga mældist 42,2 prósent á ársgrundvelli.
Matvælaverð hefur hækkað um allt að 72 prósent og heilbrigðis- og lyfjakostnaður um allt að 50 prósent, samkvæmt opinberum tölum.
Mótmæli í Teheran og fleiri borgum
Á mánudag söfnuðust hundruð kaupmanna saman í miðborg Teheran og í verslunarhverfum nærri Stóra markaðnum.
Samkvæmt ríkisfréttastofunni IRNA hafa mótmæli einnig breiðst út til Isfahan, Shiraz og Mashhad.
Lögregla beitti táragasi á sumum svæðum og greint hefur verið frá lokunum verslana.
Í kjölfar mótmælanna sagði seðlabankastjóri Írans af sér.
Yfirvöld hafa jafnframt boðað mögulegar nýjar skattahækkanir á nýju ári, sem hefst 21. mars, sem hefur aukið óvissu í efnahagslífinu þar sem laun hafa ekki fylgt verðbólgu.
Stjórnarandstaða hvetur til samstöðu.
Maryam Rajavi, leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, sem er í útlegð, sagði í yfirlýsingu að mótmælendur hefðu bent á rót vandans, sem hún kallar trúarlegt einræði, og hvatti almenning, einkum ungt fólk, til að sýna samstöðu með mótmælunum.