Bandaríska fréttaveitan MS NOW, sem áður var þekkt sem MSNBC (eða NBC) hefur neyðst til að fjarlægja mynd sem notuð var í umfjöllun um dauða Alex Pretti, sem skotinn var til bana í átökum við landamæraverði í Minneapolis um helgina, þar sem í ljós kom að gervigreind hafði verið notuð til að breyta myndinni töluvert.
Málið hefur vakið mikla gagnrýni og orðið til þess að dregið er í efa trúverðugleiki miðilsins og vinnubrögð í fréttaflutningi.
Gagnrýndu mynd í fréttaþætti
Myndin var sýnd í þættinum Deadline White House á mánudag, þar sem fjallað var um mótmæli og reiði í Minneapolis í kjölfar dauða Pretti.
Í umfjölluninni birtist mynd af honum sem síðar kom í ljós að hafði verið verulega breytt.
Samanburður við upprunalega mynd úr starfsmannaskírteini Pretti sýnir að útliti hans hafði verið breytt á margvíslegan hátt.
Litur húðar var dekkri, vöðvabygging ýkt, hár þéttara, tennur hvítari og nef og kjálkalínu var breytt.
Umræðan á samfélagsmiðlum beindist fljótt að því að hér væri ekki um einföld mistök af slysförum að ræða heldur vísvitandi og blekkjandi myndvinnslu.

Viðurkennmistökin eftir á
Í kjölfar gagnrýninnar bætti MS NOW við skýringu við myndbandið á YouTube þar sem viðurkennt er að myndinni hafi verið breytt með gervigreind.
Þar kemur fram að upprunaleg mynd hafi verið fjarlægð og henni skipt út.
Gagnrýnendur segja að slík vinnubrögð grafi undan trausti á fjölmiðlum, sérstaklega á tímum þar sem falsað eða breytt myndefni verður sífellt algengara.
Engin ástæða hefur verið gefin upp hvers vegna myndinni var breytt.
Í lýsingu myndbrotsins fyrir neðan má sjá hvar fréttastofan viðurkenni mistökin.