Myndband af Musk „gleyma“ syni sínum reyndist vera falsfrétt af verstu sort

Elon Musk, eigandi Tesla og X, hefur oft verið milli tannanna á fólki og nýlega var hann harðlega gagnrýndur fyrir að virðast gleyma syni sínum, X Æ A-Xii, á sviði og ganga í burtu.

Atvikið átti sér stað í janúar 2025 á viðburði þar sem sjá mátti Musk ganga af sviðinu á meðan fjögurra ára gamall sonur hans stóð eftir einn og ráðvilltur að því er virtist.

Sakaður um vanrækslu

Auglýsing

Þrátt fyrir að starfsfólk og áhorfendur hafi verið til staðar til að fylgjast með barninu, stöðvaði það ekki gagnrýnendur frá því að benda á það sem margir töldu vera merki um vanrækslu.

Á samfélagsmiðlinum X létu notendur ekki sitt eftir liggja. „Svokallaði snillingurinn gleymdi mannlega skildinum sínum,“ skrifaði einn notandi háðslega.

Annar bætti við: „Elon Musk gekk af sviðinu og skildi fjögurra ára son sinn eftir aleinan. Þessi myndbandsskot trufla mig og gera mig sorgmæddan.“

Myndbandið hefur þegar fengið milljónir áhorfa.

Reyndist vera falsfrétt

Þrátt fyrir reiði og gagnrýni á samfélagsmiðlum kom síðar í ljós að myndbandið sem vakti þetta umtal var byggt á villandi sjónarhorni sem notað var til að koma höggi á Musk.

Myndband frá öðru sjónarhorni sýnir að Musk beið eftir syni sínum rétt utan sviðs og þeir yfirgáfu staðinn saman.

Vinstra megin í myndbandinu má sjá þegar myndavélin færist upp á við þegar hún fer frá Musk og myndar því stiga fyrir ofan son hans, sem kemst ekki í mynd sökum sjónarhornsins.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing