Mæðgur í Langholtshverfi tóku málin í eigin hendur og útbjuggu skilti til að minna ökumenn á 30 kílómetra hámarkshraðann eftir að nærri var ekið á þær á gangbraut við Langholtsveg 112 um helgina.
Fjöldi íbúa tekur undir áhyggjur þeirra og segir hraðakstur viðvarandi vandamál á Langholtsvegi. Mælingar lögreglu styðja þá upplifun. Í þremur mælingum frá júní 2025 til mars 2026 voru á bilinu 24 til 47 prósent ökumanna skráð fyrir hraðakstur.
Sigríður Erla Sturludóttir segir ökumanninn hafa ekið augljóslega alltof hratt þegar hún og dóttir hennar voru við gangbrautina.

„Í morgun var næstum keyrt á okkur mæðgur við gangbrautina hjá Langholtsvegi 112 þar sem viðkomandi keyrði augljóslega alltof hratt,“ skrifaði Sigríður í hverfishóp íbúa.
Tóku sjálfar til sinna ráða
Í kjölfar atviksins útbjuggu mæðgurnar eigin skilti og hengdu þau upp við götuna til að minna ökumenn á að hámarkshraðinn væri aðeins 30 kílómetrar á klukkustund.
Sigríður segir hámarkshraðann virðast gleymast allt of oft og kallar eftir því að Reykjavíkurborg grípi til aðgerða.
„Borgin þarf nauðsynlega að fara gera eitthvað til að hægja á hraðanum á Langholtsvegi eins og setja upp hraðahindranir áður en það verður banaslys í götunni.“
Fjöldi íbúa tekur undir
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Fjöldi íbúa hrósaði framtaki mæðgnanna og margir lýstu eigin áhyggjum af hraðakstri á Langholtsvegi og í nærliggjandi götum.
„Skelfilegt hvað það er keyrt hratt þarna,“ skrifaði einn íbúi og kallaði eftir hraðamyndavélum sem mynduðu og sektuðu ökumenn.
Annar sagði Langholtsveg einfaldlega svo breiðan að hönnun götunnar ýtti undir hraðakstur. Þrengja þyrfti akreinarnar, breikka gangstéttir og gróðursetja tré.
Einn íbúi sagði fæsta virðast gera sér grein fyrir því að Langholtsvegur væri gata með 30 kílómetra hámarkshraða. Annar sagðist hafa það á tilfinningunni að margir ökumenn færu þar um á að minnsta kosti 60 kílómetra hraða.
Allt að 47 prósent skráð fyrir hraðakstur
Gögn lögreglu sýna að áhyggjur íbúanna eru ekki úr lausu lofti gripnar.
Í fyrri mælingunni, 11. júní 2025, var fylgst með 82 ökutækjum á Langholtsvegi. Alls voru 25 hraðabrot skráð, eða hjá 30 prósentum ökumanna. Meðalhraði allra ökutækja var 35 kílómetrar á klukkustund en meðalhraði þeirra sem brutu af sér var 44.
Í seinni mælingunni, 19. ágúst sama ár, var fylgst með 225 ökutækjum. Þá voru 53 hraðabrot skráð, eða hjá 24 prósentum ökumanna. Meðalhraði allra var aftur 35 kílómetrar en meðalhraði hinna brotlegu var 42.
Enn hærra hlutfall mældist við Langholtsveg 112 í mars síðastliðnum. Þá óku 100 ökutæki fram hjá mælingarbifreið lögreglu á einni klukkustund og voru 47 ökumenn myndaðir fyrir hraðakstur. Meðalhraði þeirra var 45 kílómetrar á klukkustund og sá hraðasti mældist á 65.

Segir borgina hafa svarað með „innihaldslausu yfirklóri“
Anna Ellen Douglas hafði áður samband við bæði lögreglu og Reykjavíkurborg vegna hraðaksturs, lélegra hraðamerkinga og skorts á hraðahamlandi lausnum.
Hún birti svar lögreglunnar þar sem fram kemur að reynt sé að mæla reglulega á Langholtsvegi. Lögreglan tók undir að nokkur hraði væri í götunni miðað við 30 kílómetra hámarkshraðann og sagðist ætla að framkvæma aðra mælingu fljótlega.
Jafnframt var bent á að sama vandamál væri til staðar á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og því erfitt að halda uppi stöðugu eftirliti.
Anna segir svörin sem hún fékk frá Reykjavíkurborg hins vegar hafa verið lítið annað en innihaldslaust yfirklór. Hún hefur þó trú á því að íbúar geti haft áhrif með því að láta í sér heyra.
