Nauðgunarmenning og feðraveldi – Ægir og Frosti takast á

Ægir Máni Bjarnason, listamaður og rappari, er nýjasti gestur í Spjallinu með Frosta Logasyni. Í þættinum fer fram heitt og beitt samtal um nauðgunarmenningu, feðraveldi, kapítalisma og valdakerfi vestrænna samfélaga.

Ægir heldur því fram að Vesturlönd séu gegnsýrð af bæði feðraveldi og nauðgunarmenningu, ekki endilega í formi hegðunar almennings heldur í gegnum stofnanir, kerfi og þöggun valdkerfisins. Hann nefnir sem dæmi mál þar sem ríkið eða yfirvöld hafi hylmt yfir brotum á drengjunum í Bakkakoti og þannig stuðlað að menningu þar sem ekki sé tekið á alvarlegum ásökunum.

Auglýsing

Frosti mótmælir þessari nálgun og segir hættulegt að tala um nauðgunarmenningu nema skilgreiningin sé skýr. Að hans mati sé ekki hægt að draga þá ályktun að samfélag í heild sinni beri slíkan stimpil nema almenningur taki virkan þátt í slíkri hegðun.

Ægir svarar því að menning snúist ekki aðeins um beinar athafnir heldur líka um viðhorf, þöggun og það þegar fólk er hvatt til að tala ekki um hlutina. Slíkt sé hluti af vandanum.

Íslam og feðraveldi 

Í þættinum berst umræðan einnig að Íslam þar sem Frosti heldur því fram að þar sé feðraveldi mun skýrara og rótgrónara en á Vesturlöndum, sérstaklega þegar litið sé til réttinda kvenna. Ægir gagnrýnir slíka framsetningu og segir hana of almenna og einfalda. Hann bendir á að múslimasamfélög séu fjölbreytt og að menning, saga og heimsvaldastefna hafi áhrif á stöðu kynjanna með ólíkum hætti eftir löndum og svæðum.

Hann leggur áherslu á að Íslam eigi sér einnig ríka menningararfleifð í listum, ljóðum og arkitektúr sem oft gleymist í umræðunni.

MeToo og Epstein skjölin

Undir lok þáttarins tengir Ægir umræðuna við MeToo byltinguna og nýlega umfjöllun um Epstein skjölin. Hann spyr hvort hægt sé að halda því fram að engin nauðgunarmenning sé til staðar á sama tíma og elítu hópar komist upp með alvarlega misnotkun.

Frosti svarar því að þau mál varði afmarkaða elítu en ekki almenning og að það sé hættulegt að yfirfæra hegðun fárra yfir á heilt samfélag.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing