Nicki Minaj kallar eftir vernd kristinna í Nígeríu – Þakkar Trump fyrir aðgerðir

Tónlistarkonan Nicki Minaj tók undir fullyrðingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að kristnir sæti ofsóknum í Nígeríu.

Hún flutti ræðu á þriðjudag fyrir hönd Bandaríkjanna á fyrir sendinefnd Sameinuðu þjóðanna í New York, þar sem hún sagði vilja varpa ljósi á banvæna ógn sem steðjaði að kristnu fólki í landinu.

Auglýsing

Trump hefur lýst því yfir að kristni standi frammi fyrir ofsóknum og jafnvel tilvistarhættu í Nígeríu og hefur sagt varnarmálaráðuneytinu að undirbúa möguleg hernaðarúrræði.

Flutti ræðu með bandaríska sendiherranum

Minaj, sem er fædd í Trínidad og Tóbagó, þakkaði Trump í ræðu sinni fyrir að kalla eftir brýnum aðgerðum til að verja kristna í Nígeríu, berjast gegn öfgum og stöðva ofbeldi gegn þeim sem vilja aðeins iðka trú sína.

Hún tók þátt í pallborði ásamt Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, og trúarleiðtogum.

Viðburðurinn fór fram eftir að Minaj svaraði færslu Trump á samfélagsmiðlinum X fyrr í mánuðinum þar sem hún skrifaði:

„Enginn á nokkurn tíma að sæta ofsóknum fyrir að iðka trú sína.“

Páfinn talar um vaxandi vandamál á heimsvísu

Í færslu á sunnudag sagði páfi Leo XIV að kristnir sættu mismunun og ofsóknum víða um heim.

Hann nefndi sérstaklega Nígeríu ásamt Bangladesh, Mósambík og Súdan.

Waltz þakkaði Minaj fyrir að nota rödd sína til að vekja athygli á stöðu kristinna í Nígeríu hjá þeim milljónum sem fylgja henni.

Ákveðin að standa með þeim sem sæta ofsóknum

Minaj sagðist vera mjög taugaóstyrk að tala á slíkum vettvangi en hét því að halda áfram að láta í sér heyra í baráttu gegn óréttlæti fyrir alla sem mæta ofsóknum vegna trúar sinnar.

„Því miður er þetta vaxandi vandamál ekki aðeins í Nígeríu heldur í svo mörgum öðrum ríkjum um allan heim,“ sagði hún.

Vill sameina fólk, ekki skipta því í fylkingar

Minaj lagði áherslu á að málið snerist ekki um að taka afstöðu eða skipta fólki í hópa eftir trúarbrögðum.

„Þetta snýst um að sameina fólk,“ sagði hún og lýsti Nígeríu sem fallegu landi með gamlar og fallegar trúarhefðir sem hún sagðist hlakka til að heimsækja.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing