Níu manns slösuðust þegar ætandi vökva var hellt úr glugga yfir upplýsingabás þýska stjórnmálaflokksins AfD í Bad Kreuznach síðdegis á miðvikudag.
Fólkið sem varð fyrir skvettum fékk væga húðertingu. Tveir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar en fengu að fara heim skömmu síðar.
Sólhlífin tók við stórum hluta vökvans
Vökvanum var hellt úr glugga í aðliggjandi byggingu þar sem bás AfD hafði verið reistur. Fjölmenni var við básinn þegar árásin var gerð en sólhlíf sem var yfir honum tók við stórum hluta vökvans.
„Við höfðum kannski búist við mótmælum í Bad Kreuznach en ekki þessu,“ sagði Nicole Höchst, þingmaður AfD, sem var á staðnum og þurfti sjálf að fá læknisaðstoð.
Lögregla hefur ekki staðfest hvaða efni var notað og sýni eru enn til rannsóknar.
Sebastian Münzenmaier, þingmaður og leiðtogi AfD í Rínarlandi, var einnig við básinn ásamt fleiri kjörnum fulltrúum flokksins.
Rannsókn stendur yfir
Mikill viðbúnaður lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna var vegna árásarinnar og þurfti meðal annars að rýma götuna.
Lögregla hefur borið kennsl á mann sem grunaður er um verknaðinn. Saksóknarar og sérdeild lögreglunnar sem rannsakar pólitískt ofbeldi hafa tekið málið til rannsóknar vegna gruns um að ástæða árásarinnar kunni að vera pólitísk.