Nýr flokkur býður fram í Reykjavík: Okkar Borg – Þvert á flokka kynnir framboð og stefnu

Nýr stjórnmálaafl mun bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík: Okkar Borg – Þvert á flokka, sem kynnir sig sem umbótaflokk með áherslu á „festu og ábyrgð í stjórnun borgarinnar“.

Fréttatilkynning var birt í dag á samfélagsmiðlum þar sem Sigfús Aðalsteinsson tilkynnti framboðið og helstu áherslur.

Auglýsing

„Undanfarið hafa fjölmargar áskoranir borist til okkar um að stofna stjórnmálaflokk sem hafi að markmiði gagngerar breytingar á hælisleitendamálum og leggi áherslu á að tekið sé mark á vilja borgarbúa. Krafan hefur verið skýr: að taka þessi mál föstum tökum og af alvöru,“ segir í tilkynningunni.

Segir Reykjavíkurborg lykilbreytu í hælisleitendamálum

Flokkurinn hyggst segja upp öllum samningum borgarinnar við Útlendingastofnun vegna hælisleitenda og segir að ábyrgð í þeim málaflokki sé hjá Alþingi, ekki Reykjavíkurborg.

„Borgarstjórn rekur skyldur sínar gagnvart borgarbúum, enda lögbundin skylda hennar.“

Stefnt að ráðningarstoppi og hagræðingu

Í stefnu flokksins kemur fram að boðað verði ráðningarstopp hjá borginni þar sem það er mögulegt, með áherslu á aðhald og skýran rekstur í öllum deildum borgarkerfisins.

Keldnalandi hafnað – Geldinganes byggt upp

Flokkurinn hafnar alfarið fyrirhuguðu skipulagi Keldnalands, en vill í staðinn hraða uppbyggingu á Geldinganesi með fjölbreyttum húsnæðiskostum og skilyrðum um bílastæði og bílakjallara fyrir allar íbúðir.

Áhersla er lögð á lágreista byggð.

Andstaða við Borgarlínu og vegatolla

Flokkurinn lýsir harðri andstöðu við Borgarlínu, sem hann hafnar alfa­rið, og segir að vegatollar og tilheyrandi gjaldtaka muni ekki fá stuðning hans.

Okurvextir: Málsókn íhugandi

Í áherslum fyrir sveitarstjórnarmál segir flokkurinn að Reykjavíkurborg muni, í krafti stærðar sinnar, þrýsta á um breytingar á peningastefnu ríkisins.

Málsókn á hendur ríkinu vegna okurvaxta er sögð til skoðunar, og aðgerðaleysi kallað mikil ábyrgð.

Kynjafræði, Samtökin ’78 og menntamál

Í menntastefnukafla kemur fram að flokkurinn vill rifta samningum við Samtökin ’78 og hætta allri kynjafræðikennslu.

Þar segir einfaldlega: „Látið börnin okkar í friði.“

Jafnframt er lagt til að forskólar fyrir nemendur sem ekki tala íslensku verði reknir á kostnað ríkisins, og að einkareknir leik- og grunnskólar fái 100% greiðslur, í stað þeirra 75% sem nú gildir samkvæmt núverandi reglum.

Framboðið stefnir á að bjóða fram til borgarstjórnar í næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2026.

Ekki hefur verið greint frá því hverjir munu skipa efstu sæti listans.

Núverandi stjórnmálaöfl vonbrigði

Sigfús Aðalsteinsson, talsmaður og forsprakki framboðsins Okkar Borg – Þvert á flokka, segir í samtali við Nútímann að framboðið hafi orðið til vegna vonbrigða með núverandi stjórnmálaöfl í borginni, jafnt þau sem nú sitja í borgarstjórn sem önnur sem boðið hafa fram.

„Við gáfumst upp á núverandi flokkum, hvort sem þeir eru í borgarstjórn eða ekki. Allt sem þessi óreiðuhópur sem hefur skipað borgarstjórn og öll embætti henni tengd er að mestu í óþökk borgarbúa og til þess eins að koma á einhverri útópíu sem fullnægir þeirra þörfum,“ segir Sigfús.

Hann gagnrýnir harðlega hvernig rekstur borgarinnar hefur þróast undanfarin ár og nefnir sérstaklega málefni hælisleitenda, skipulagsmál, félagsþjónustu, samgöngur og skóla- og leikskólamál.

„Hælisleitendur eru teknir sem kóngar og hringt um allan bæ í yfirboð á leiguhúsnæði og loforð um tryggingar í hæstu hæðum. Skipulagsmál eru í algjörum ólestri hvar sem litið er. Félagsþjónustan sinnir hælisleitendum fremur en íslenskum borgarbúum. Samgöngur eru í ólestri og allt gert til að trufla umferð bíla um borgina.“

Sigfús segir skólakerfið í vanda, meðal annars vegna fjölgunar barna sem ekki tala íslensku: „Skólarnir eru tæpast rekstrarhæfir vegna blöndunar ‘mállausra erlendra barna’ og fjölda þeirra í skólakerfinu.“

Þá gagnrýnir hann áhrif Samtakanna ’78 á leik- og grunnskóla: „Ofurkapp lagt á óþarfa innprentun leikskóla og skólabarna af hendi Samtakanna ’78.“

Leikskólamál segir hann í ólestri, bæði vegna framkvæmda og öryggismála: „Hvort sem um ræður brjálæðislegar endurbyggingar húsnæðis eða móttöku og öryggis leikskólabarna. Þennan þátt munum við vinna undir yfirskriftinni látið börnin okkar í friði.“

Að lokum segir Sigfús að framboðið hyggist nýta stærð borgarinnar til að þrýsta á um breytingar í efnahagsmálum: „Við munum nota stærð borgarinnar til að þrýsta á vaxtamál og vaxtalækkun því borgin ein og sér greiðir tugi milljarða í vaxtakostnað.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing