Óboðnir gestir tvisvar á sömu lóð á innan við viku – „Get the fuck out of here!“

Íbúi í miðbæ Hafnarfjarðar varð var við ókunnugan mann inni í garði sínum skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ljós voru kveikt í húsinu og sjónvarpið í gangi, en það virðist ekki hafa fælt manninn frá.

Atvikið var annað sinnar tegundar á sömu lóð á innan við viku. Íbúinn birti myndband af síðari heimsókninni í Facebook hópnum Þjófar á Íslandi og hvetur fólk til að vera á varðbergi.

Auglýsing

Rak manninn af lóðinni

Á myndbandinu sést hvar maðurinn gengur um við húsið á meðan íbúinn krefur hann svara.

„Hvað ertu að gera í garðinum?“ spyr hann áður en hann skipar manninum ítrekað að fara.

„Drullið ykkur í burtu. Bara núna. Get the fuck out of here!“

Íbúinn kallar síðan inn í húsið og biður um að lögreglan verði látin vita.

Lögreglan sendi dróna á loft

Fyrra atvikið varð um klukkan þrjú aðfaranótt laugardags. Að sögn íbúans voru þá tveir menn inni á lóðinni og taldi hann að þeir væru að leita að verðmætum.

Ekki liggur fyrir hvort sömu menn hafi komið að báðum atvikunum, en svo virðist ekki vera því íbúinn segir að sá sem hann rak burt í myndbandinu hafi verið með austur evrópskan hreim en sá sem komið hafði um helgina hafi verið íslenskur.

Þá hrósaði hann lögreglu fyrir skjót viðbrögð og segir þá hana mætt og leitað í um 90 mínútur í hverfinu með hjálp dróna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing