Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, telur töluverðar líkur á því að já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst leiði ekki til skjótra aðildarviðræðna og samnings sem lagður verði fyrir þjóðina, heldur margra ára þófs við Evrópusambandið.
Hann telur að sambandið hafi lítinn hvata til að ljúka aðildarferlinu ef útlit er fyrir að ekki sé nægur stuðningur við aðild á Íslandi og að samningur kunni að verða felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þetta kemur fram í nýrri klippu úr ítarlegu viðtali Frosta Logasonar við Ólaf Ragnar í Spjallinu.
„Ekkert sem Evrópusambandið óttast eins mikið“
Ólafur Ragnar segir að ESB vilji umfram allt forðast þá niðurstöðu að ljúka aðildarsamningi sem síðan verði hafnað af þjóð viðkomandi ríkis.
„Það er ekkert sem Evrópusambandið óttast eins mikið og að það verði tap í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Ólafur Ragnar.
Hann telur að sambandið muni því horfa til þess hversu sterkt pólitískt bakland íslensk stjórnvöld hafi fyrir aðild þegar ákvörðun verði tekin um framgang viðræðnanna.
Ef enginn afgerandi meirihluti sé fyrir aðild meðal þjóðarinnar, enginn þingmeirihluti fyrir inngöngu og ágreiningur standi um stór mál á borð við yfirráð Íslands yfir hafsvæðum sínum, telur Ólafur Ragnar líklegast að ESB hægi einfaldlega á ferlinu.
„Þá muni þeir bara einfaldlega tefja þetta mál árum saman og láta þetta svona fjara út eins og gerðist síðast.“
Hætta á að Ísland læsist inni í margra ára þófi við Brussel vegna erfiðra samningskafla. Sjáðu allt viðtalið við Ólaf á https://t.co/w6DtdilRyP. pic.twitter.com/dbD85La86V
— Brotkast (@brotkasttv) August 6, 2026
Segir síðustu viðræður hafa fjarað út
Ólafur Ragnar mótmælir þeirri algengu lýsingu að aðildarviðræðum Íslands og ESB hafi beinlínis verið slitið síðast þegar Ísland sótti um aðild.
„Viðræðunum var ekki slitið á sínum tíma, það er sögulegur misskilningur. Þær bara voru settar í biðstöðu og svo fjöruðu þær út.“
Að hans mati hafi ástæðan meðal annars verið sú að þegar komið var að erfiðustu köflunum hefði komið upp ágreiningur um mál sem erfitt hefði verið fyrir Íslendinga að sætta sig við.
„Menn sáu að við það eitt að fara að opna svona alls konar erfiða kafla þá bara myndi gjósa upp úr því alls konar ágreiningsefni sem Íslendingar myndu ekkert sætta sig við og það væri því ekki þess virði að fara í þann leiðangur.“
„Læst inni í þófi við Brussel“
Ólafur Ragnar telur hættu á að sambærileg staða geti komið upp að nýju verði já ofan á 29. ágúst.
Þá geti Ísland lent í margra ára aðildarferli án þess að nokkur trygging sé fyrir því að endanlegur samningur verði lagður fyrir þjóðina eftir þrjú, fjögur, fimm eða jafnvel sex ár.
Á meðan telur hann stöðu Íslands gagnvart öðrum ríkjum geta veikst. Hann nefnir sérstaklega möguleika Íslands til að þróa fríverslunarsamninga, gera nýja samninga við ríki utan ESB og semja um deilistofna í hafinu.
Þá telur hann að íslensk fyrirtæki geti átt erfiðara með að sækja á markaði utan Evrópu á meðan óvissa ríkir um framtíðarstöðu Íslands.
Ofan á þetta bætist sú vinna sem sjálft aðildarferlið krefjist af íslenska stjórnkerfinu.
Ólafur Ragnar vísar þar til orða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að ESB-ferlið myndi taka mikið „súrefni“ úr íslenska stjórnkerfinu.
„Öll orka stjórnkerfisins, eins og forsætisráðherra hefur sagt, mun fara í þetta aðildarferli og við munum einhvern veginn læsast inni í þófi við Brussel,“ segir Ólafur Ragnar.
Að hans mati gæti slíkt ferli tekið „alla athygli og allt súrefni og alla hagsmunagæslu“ án þess að nokkur niðurstaða liggi fyrir sem hægt væri að bera undir íslensku þjóðina að nokkrum árum liðnum.
Hægt er að horfa á allt viðtalið við Ólaf Ragnar í spilaranum hér að neðan.