Bandaríska tæknifyrirtækið Oracle Corporation hefur sagt upp um 30.000 starfsmönnum á heimsvísu, sem jafngildir um 19% af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins. Uppsagnirnar hafa vakið mikla athygli, ekki síst þar sem fyrirtækið hefur á sama tíma skilað miklum hagnaði.
Starfsmenn fengu uppsagnarbréf snemma morguns
Samkvæmt heimildum fengu starfsmenn í sölu, mannauðsmálum, verkfræði og þróun, tölvupóst frá stjórnendum klukkan 6 að morgni.. Í tilkynningunni var vísað til skipulagsbreytinga sem ástæðu uppsagnanna.
Talið er að um 12.000 til 15.000 þeirra sem missa vinnuna séu staðsettir á Indlandi, þar sem fyrirtækið rekur stóran hluta starfsemi sinnar.
Gervigreind og gagnaver í forgrunni
Sérfræðingar segja að uppsagnirnar endurspegli þá þróun í tæknigeiranum þar sem fyrirtæki færa fjármuni yfir í fjárfestingar í gervigreind og innviðum. Oracle er meðal annars að verja gríðarlegum fjárhæðum í uppbyggingu gagnavera til að styðja við gervigreindar þjónustu.
Þá hefur fyrirtækið gert stóran samning við OpenAI um að útvega reiknigetu fyrir þróun gervigreindarlíkana á næstu árum, sem krefst umfangsmikillar uppbyggingar.
Hluti af þróun í tæknigeiranum
Uppsagnirnar hjá Oracle eru ekki einsdæmi. Undanfarin ár hafa stór tæknifyrirtæki eins og IBM, Amazon og Google sagt upp þúsundum starfsmanna á sama tíma og tekjur og hagnaður hafa aukist.
Líklegt er að þessi þróun muni halda áfram, þar sem fyrirtæki leitast við að reka starfsemi sína með færri starfsmönnum og meiri sjálfvirkni, sérstaklega með tilkomu gervigreindar.