Ótrúlegt rán um hábjartan dag – Sjáðu þegar ræningjarnir sprengja peningaflutningabíl á hraðbrautinni

Vopnað rán var framið þegar peningaflutningabíll var sprengdur á A2 hraðbrautinni í Calabria á Ítalíu á mánudagsmorgun. Atvikið átti sér stað á milli bæjanna Scilla og Bagnara Calabria. Samkvæmt lögreglu komust ræningjarnir undan með um tvær milljónir evra í reiðufé.

Lögregla segir að árásin hafi verið þaulskipulögð.

Kveikt í bílum og umsátur í jarðgöngum

Auglýsing

Ræningjarnir stöðvuðu peningaflutningabílinn í jarðgöngum. Þeir settu tvö ökutæki þvert yfir veginn og kveiktu í þeim. Þá dreifðu þeir nöglum og göddum á akbrautina til að koma í veg fyrir eftirför.

Skotvopnum var beitt til að ógna öryggisvörðum bílsins. Enginn slasaðist, en starfsmennirnir eru sagðir í áfalli.

Umferð stöðvaðist

Ránið olli miklum umferðartöfum á hraðbrautinni. Vegurinn var lokaður um tíma á meðan lögregla rannsakaði vettvanginn og slökkvilið slökkti elda. Ökumönnum var vísað af veginum við Scilla og leyft að aka aftur inn á hann við Bagnara. Lögregla leitar nú að ræningjunum. Engar handtökur hafa verið tilkynntar og ekki liggur fyrir hverjir standa að ráninu.

Hægt er að sjá myndband af ráninu hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing