Leó páfi hefur orðið að skotspæni á samfélagsmiðlum eftir að hann blessaði ísklump á loftslagsráðstefnunni Raising Hope for Climate Justice, sem haldin var í Castel Gandolfo nálægt Róm.
Ráðstefnan, sem snerist um loftslagsmál, var sótt af ýmsum áhrifamönnum, þar á meðal Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóra Kaliforníu.
Leó páfi flutti þar ræðu þar sem hann hvatti leiðtoga heimsins til aðgerða.
Hann gagnrýndi einnig þá sem gera lítið úr loftslagsbreytingum og saka fátæka um vandann, þótt þeir séu oftast verst settir.
„Klaka-blessunin“ vakti kátínu
Það sem vakti mesta athygli var þó þegar Leó páfi blessaði stóran ísklump í lok ræðunnar.
Á samfélagsmiðlinum X virtist vera búið að setja tíkall í hvern einasta trúð á miðlinum:
„Ég hélt að þetta væri grín. Verður þetta heilagt vatn þegar það bráðnar?“ spurði einn.
„Páfinn að blessa klaka? Þetta er komið út í vitleysu,“ skrifaði annar.
„Tími til kominn að snúa aftur til rétttrúnaðarkirkjunnar,“ bætti þriðji við.
Rifrildi við Trump
Uppátækið kemur skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði loftslagsbreytingar „blekkingu“.
Í viðtali sagði hann: „Kolefnisspor er ímyndun gráðugra afla. Þetta er sjálfseyðing.“
Leó páfi hefur einnig gagnrýnt stefnu Bandaríkjastjórnar í innflytjendamálum og sagði nýverið: „Ef einhver segist vera á móti fóstureyðingum en samþykkir ómannúðlega meðferð á innflytjendum, þá veit ég ekki hvort sá aðili geti sagst vera sannkristinn.“