Páll sakar formann Blaðamannafélagsins um að falsa úttekt Blaðamanna án landamæra með breyttri endursögn

Páll Vilhjálmsson, fyrrum framhaldsskólakennari og bloggari, sakar formann Blaðamannafélags Íslands, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, um að hafa viljandi farið rangt með efni úr alþjóðlegri úttekt á stöðu fjölmiðla á Íslandi og með því dregið upp aðra mynd en fram kemur í frumtexta.

Í nýlegri færslu fer hann yfir afmarkað efni úr úttekt Blaðamanna án landamæra og segir að þar fari upprunalegur texti og endursögn Sigríðar ekki saman.

Auglýsing Auglýsing

Segir „fulltrúa útgerða“ uppspuna

Páll bendir á að í upprunalegum texta er bent á eignarhald stórra útgerðarfyrirtækja á fjölmiðlum og mögulega hagsmunaárekstra, en hins vegar að Sigríður tali um að sjálfstæði blaðamanna sé ógnað af fulltrúum stórfyrirtækja, sérstaklega útgerðarfyrirtækja. Páll segir að í endursögn Sigríðar Daggar sé þessu snúið upp í að fulltrúar útgerða ógni sjálfstæði blaðamanna, sem hann telur ekki eiga sér stoð í upprunalega textanum.

„Sigríður Dögg býr til ,,fulltrúa“ útgerða þar sem enski textinn talar um eignarhald útgerða á fjölmiðlum,“ segir Páll.

Páll heldur því einnig fram að fullyrðingar um mútugreiðslur í Namibíu hafi aldrei verið staðfestar með gögnum. Hann segir að í úttektinni sé aðeins talað um grun um spillingu (suspected corruption), sem sé allt annað en staðfestar mútur.

Upprunalegi textinn
Textinn úr endursögn Sigríðar

Þá heldur hann því fram að það sem hann segir vera rangfærslur í umfjöllun Sigríðar þjóni þeim tilgangi að ýta undir þá frásögn að íslenskir fjölmiðlar hafi afhjúpað stórt spillingarmál erlendis.

Deilan snýst um hvað var rannsakað

Páll heldur því einnig fram í gagnrýni sinni að lögreglurannsókn gegn blaðamönnum sem vísað er til í úttektinni hafi ekki beinst að Namibíumálinu sjálfu, heldur að svokölluðu byrlunar- og símamáli hér á landi, þar sem sími skipstjóra var afritaður eftir að honum var byrlað og gögn sem í honum voru nýtt í fjölmiðlaumfjöllun.

Páll heldur því fram að þetta samhengi sé vísvitandi falið í endursögn formannsins:

„Sakamenn í röðum blaðamanna þegja enn um aðkomu sína að byrlunar- og símamálinu. Formaður fagfélags blaðamanna leggur sig fram um að gera byrlun, stuld og ólöglega afritun einkasíma á Íslandi að mútumáli í Afríku. Dálítið langsótt.“

Blaðamaður náði í Sigríði Dögg Auðunsdóttur í síma en hún kaus að tjá sig ekki um færslu Páls að svo stöddu.

 

Auglýsing Auglýsing

læk

Auglýsing Auglýsing
Auglýsing Auglýsing